Beint á leiðarkerfi vefsins

Vinnumálastofnun

Lög nr. 152/2006 um ættleiðingarstyrki

Lög um styrki vegna kostnaðar við ættleiðingu barna erlendis frá voru samþykkt á Alþingi 9. desember 2006.

Þau tóku gildi 1. janúar 2007 og ná til allra ættleiðinga sem lýkur eftir þann tíma en ekki til ættleiðinga sem þegar er lokið.

Markmið laganna er að aðstoða kjörforeldra sem ættleiða barn eða börn erlendis frá.

Tilgangur þeirra er að styrkja kjörforeldra vegna þess kostnaðar sem skapast við ættleiðingaferlið.

Ef kjörforeldrar uppfylla skilyrði laganna og eiga rétt samkvæmt þeim er ættleiðingarstyrkurinn, frá 1. janúar 2009, eingreiðsla kr. 526.080.- Ef ættleidd eru fleiri en eitt barn samtímis er veittur styrkur vegna hvers barns umfram eitt sem nemur 20% af þeirri upphæð.  Fjárhæð styrksins er endurskoðuð í tengslum við afgreiðslu fjárlaga á tveggja ára fresti.

Úrdráttur úr lögunum:

1. gr. Gildissvið.
Lög þessi taka til fjárstyrkja úr ríkissjóði til kjörforeldra sem ættleitt hafa erlent barn eða börn í samræmi við lög um ættleiðingar.  Lög þessi taka ekki til alþjóðlegra fjölskylduættleiðinga.

5. gr. Greiðsla og skilyrði styrks.
Ættleiðingarstyrkur er eingreiðsla sem er greidd út samkvæmt umsókn kjörforeldra þegar erlend ættleiðing hefur verið staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi hefur verið gefið út hér í samræmi við ákvæði laga um ættleiðingar.  Kjörforeldrar sem hafa fengið útgefið forsamþykki í samræmi við lög um ættleiðingar eiga einir rétt á ættleiðingarstyrk.  Þessi réttur er ekki framseljanlegur.

6. gr. Umsókn um styrk.
Sækja skal um styrk innan sex mánaða frá því erlend ættleiðing er staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi hefur verið gefið út hér í samræmi við lög um ættleiðingar.  Réttur til ættleiðingarstyrks fellur niður að þessum tíma liðnum.

Ættleiðingarstyrkir eru undanþegnir staðgreiðslu skatta og hefur lögum um tekjuskatt verið breytt, sbr. 30. gr. l. nr. 90/2003.  Þannig að nú er leyfður frádráttur frá tekjum sem byggist á sannanlegum kostnaði sem fólk verður fyrir við ættleiðingu barns.  Skilyrði frádrættinum er að fullnægjandi reikningar liggi að baki.  Aldrei skal þó leyfð hærri fjárhæð til frádráttar en talin yrði til tekna sem ættleiðingarstyrkur.  Ef fjárhæð frádráttar verður lægri en styrkurinn ber að greiða tekjuskatt af mismuninum.  Á skattframtali er styrkurinn talinn upp sem tekjur, skv. útgefnum launamiða, en framteljendur skrá inn kostnað á móti.

Umsókn um ættleiðingarstyrk:

 Umsóknareyðublað PDF skjal, Word skjal

Umsókninni skulu fylgja eftirfarandi fylgigögn:

Staðfesting Þjóðskrár um lögheimili umsækjenda samkvæmt íbúaskrá.
Forsamþykki dómsmálaráðherra til ættleiðingar barns erlendis frá.
Staðfesting erlends stjórnvalds um ættleiðinguna.
Bréf frá sýslumanni um áritun/stimplun hins erlenda ættleiðingarskjals.

Nánari upplýsingar:  Hugrún Björk Hafliðadóttir og í síma 515-4800.


Samskipti

Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.

Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum 
er opnunartími á föstudögum 
frá 9:00 - 12:00.

Helstu símanúmer:

* Þjónustuskrifstofan
  á Engjateig 11: 
Sími   515 4850
Bréfasími  588 2587

* Greiðslustofa atvinnu-
  leysistrygginga á
  Skagaströnd: 
   582 4900

* Fæðingarorlofssjóður
  á  Hvammstanga: 
   582 4840
 
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
  v/Tryggvagötu: 
   515 4800
         >> Nánar << 

Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar

pólskur fáni smærri 


English information

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Vinnumálastofnun