Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Atvinnuleitandi

Forsíða:

Atvinnuleitandi

Vinnumiðlun
Þjónustuskrifstofur aðstoða fólk við leit að starfi. Þar er hægt að nálgast upplýsingar um laus störf um allt land. Boðið er upp á aðstoð við gerð atvinnuumsóknar og ferilskrár eða undirbúning fyrir starfsviðtal ef óskað er.

Atvinnuleysisskráning
Umsókn um atvinnu- og atvinnuleysisbætur er hægt að fylla út rafrænt á vefsíðu Vinnumálastofnunar. Skila þarf fylgigögnum til viðkomandi þjónustuskrifstofu innan tveggja vikna frá því umsókn var send inn.

- Þú skráir þig fyrsta daginn sem þú verður launalaus.
- Þú kemur á skrifstofu Vinnumálastofnunar innan tveggja vikna frá því að umsóknin var stofnuð með umbeðin gögn og skrifar undir umsóknina.
- Greiðslutímabil atvinnuleysisbóta er frá 20. - 19. hvers mánaðar. Útborgunardagur er 1. virki dagur hvers mánaðar.
- Fyrstu 10 virku daga eru greiddar grunnatvinnuleysisbætur, en eftir það tekjutengdar bætur eigi viðkomandi rétt á þeim.

Lesa nánar um skráningu vegna atvinnu og atvinnuleysisbóta.

Náms- og starfsráðgjöf
Á þjónustuskrifstofum eru starfandi náms- og starfsráðgjafar. Þeir aðstoða við starfsval og nám. Einnig veita þeir almenna ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit.

Úrræði á vegum þjónustuskrifstofa
Fólki á atvinnuleysisbótum standa til boða ýmis námskeið og úrræði. Lögð er áhersla á að þau styrki fólk í atvinnuleit.
   
   Úrræðin eru meðal annars:

      - Starfsþjálfun; tímabundin þjálfun og þáttaka í starfsemi vinnustaðar
      - Reynsluráðning; ráðning til reynslu með framtíðarráðningu í huga
      - Nám/námskeið; eykur starfshæfni einstaklingsins

Sérstök verkefni á vegum þjónustuskrifstofa, þ.e. verkefni sem í boði eru fyrir þá sem sýna frumkvæði til atvinnusköpunar.

Eures - Evrópsk vinnumiðlun
Eures - Evrópsk vinnumiðlun miðlar störfum á milli Evrópulanda.
Starfsmenn þjónustuskrifstofanna aðstoða þá sem vilja skoða atvinnuleit erlendis. 


Tenglar

Menntatorg - logo

Menntatorg - Upplýsingar um nám og ráðgjöf fyrir atvinnulausa sem eru 20 ára og eldri, hafa ekki lokið framhaldsskóla og eru að leita sér að stuttu námi eða námskeiði.


betritid

Betrí tíð
- Upplýsingatorg þar sem atvinnuleitendur hafa greiðan aðgang að upplýsingum og finna svör við spurningum um allt hvaðeina varðaði stöðu þeirra.



Fræðslumiðstöð atvinnulífsins - logo

Fræðslumiðstöð atvinnulífsins - er vettvangur um fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði við aðrar fræðslustofnanir á vefum aðildarsamtakanna. Einnig upplýsingaveita um samstarf í menntunarúrræðum.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu