Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Atvinna og atvinnuleit erlendis

Forsíða:

Atvinnuleitandi - Atvinna og atvinnuleit erlendis

Atvinnuleit í öðru aðildarríki EES

Það er margt sem þú þarft að athuga ef þú vilt vinna í öðru EES-landi. Hvað þarf að gera áður en lagt er að af stað. Hvaða reglur gilda í nýju landi. Hvaða störf koma helst til greina? Hjá Vinnumálastofnun starfa EURES ráðgjafar sem geta veitt svör við helstu spurningum sem koma upp þegar hugað er að atvinnuleit erlendis.

Það getur borgað sig að byrja á að skoða vefgátt EURES en þar má finna störf auglýst af EURES (opinberum vinnumiðlunum EES-landanna) Best er að byrja á að setja inn starfsgrein (velja frá lista) og land (undir location). Á þessari síðu er verið að auglýsa eftir fólki frá Evrópska efnahagssvæðinu - t.d. fólki í þau störf sem ekki tekst að manna í viðkomandi landi. Einnig má finna upplýsingar um ástand á vinnumörkuðum landanna og upplýsingar um lífs- og vinnuskilyrði . Á síðunni má líka finna hafa uppi á Euresráðgjafa í öllum löndum Evrópu (Eures adviser). Það getur komið sér afar vel að hafa samband við einn slíkan áður en haldið er utan.

Mikið magn upplýsinga og tengla er lúta að atvinnu og atvinnuleit í Evrópu má finna hér.

 

Ef þú er ert atvinnulaus og færð greiddar atvinnuleysisbætur getur þú farið í atvinnuleit til Evrópu og haldið dagpeningum þínum. E-303 vottorðið veitir þér rétt til að fá greiddar atvinnuleysisbætur í allt að þrjá mánuði (en þó aldrei í lengri tíma en bótaréttur leyfir) meðan þú ert að leita þér að vinnu í öðru EES ríki. Umsækjandi um E-303 þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði:

  • a. hefur sótt um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar,
  • b. hefur verið í virkri atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur fyrir brottfarardag,
  • c. er heimilt að vera í frjálsri atvinnuleit í öðru aðildarríki samkvæmt lögum þess ríkis, og
  • d. skráir sig í atvinnuleit hjá vinnumiðlun í því ríki þar sem atvinnuleitin fer fram samkvæmt lögum þess ríkis innan sjö virkra daga frá brottfarardegi.

Heimilt er að veita undanþágu frá skilyrði b-liðar þegar foreldri, maki, sambúðarmaki eða samvistarmaki viðkomandi dvelst við nám eða störf í því landi þar sem atvinnuleitin fer fram. Hið sama gildir ef börn viðkomandi undir 18 ára aldri eru búsett í landinu með hinu foreldri sínu eða hann hafi þegar fengið tilboð um starf þar í landi.

Vinnumálastofnun er einnig heimilt að veita viðkomandi lengri tíma til að skrá sig hjá hinni erlendu vinnumiðlun en d-liður segir til um. Greiðslur atvinnuleysisbóta falla þá niður frá og með brottfarardegi og hefjast að nýju við skráningu erlendis.


Tenglar

Atvinnulíf á Norðurlöndum

Norrænt vefrit um atvinnulíf á norðurlöndum þar sem hægt er að finna fréttir og málefni um norrænt atvinnulíf frá norrænum sjónarhóli, á borð við vinnumarkað, starfsumhverfi, réttindi starfsmanna og fleira. Áhersla er lögð á efni um efnahagsástandið, umhverfismál, nýsköpun og daglegt líf á vinnustöðum.

http://www.nordiclabourjournal.org/ 

 


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu