Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Eures - Evrópsk vinnumiðlun

Forsíða:

Atvinnuleitandi - Atvinna og atvinnuleit erlendis - Eures - Evrópsk vinnumiðlun

Um Eures

EURES (EURopean Employment Services) er samstarf um vinnumiðlun milli ríkja á Evrópska Efnahagssvæðinu (EES). EES-löndin má sjá hér. Átta hundruð Eures ráðgjafar mynda samskiptanet í öllum ríkjum EES. EURES netið er á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins en með EES-samningnum hafa Íslendingar aðgang að þessum stóra vinnumarkaði. Markmiðið er að auðvelda vinnandi fólki að flytjast milli EES-landa. Euresráðgjafar miðla upplýsingum um atvinnutækifæri og atvinnuleitendur svo hægt sé að leysa staðbundna manneklu og atvinnuleysi á ýmsum sviðum með flutningum milli svæða. Meginþættir EURES eru að:

  • Leiðbeina fólki í atvinnuleit erlendis
  • Veita upplýsingar um búsetu- og starfsskilyrði
  • Aðstoða vinnuveitendur sem hafa áhuga á að ráða til sín fólk frá öðrum EES-löndum

Euresráðgjafar hafa allir fengið sömu grunnþjálfun og hafa sérfræðiþekkingu í atvinnumálum innan EES. Eures ráðgjafarnir veita m.a. upplýsingar um eftirfarandi:

  • Atvinnutækifæri í EES-löndum
  • Almannatryggingar og heilsugæslu
  • Skattamál
  • Menntamál
  • Starfsþjálfunartækifæri
  • Samanburð á starfsréttindum
  • Framfærslu og húsnæðiskostnað
  • Hagnýt heimilisföng vegna sérþarfa

EURES á Íslandi er rekin á vegum Vinnumálastofnunar 

Fara á vefsíðu Eures


Hafa samband

Eures

EURES
Evrópsk vinnumiðlun

Kringlunni 1
103 Reykjavík

Sími 554 - 7600
Bréfasími 554 - 7601

Netfang: eures@vmst.is
Vefsíða: www.eures.is


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu