Norræn vinnumiðlun
Danmörk
Jobnet er rafræn vinnumiðlun fyrir alla atvinnuleitendur og atvinnurekendur í Danmörku. Á jobnet getur þú fundið upplýsingar um almenna atvinnuleit og ferli atvinnuumsókna, aðgang að stærsta starfabanka Danmerkur, og svæðisbundnar upplýsingar um atvinnumiðlanir.
Noregur
Öll laus störf í Noregi er hægt að finna í starfagagnagrunni NAV, ásamt almennum upplýsingum um atvinnuleit og ferli atvinnuumsókna. NAV vefsíðan inniheldur einnig upplýsingar um almenna félagsaðstoð og réttindi til atvinnuleysisbóta.
Svíþjóð
Arbetsförmedlingen býður upp á stærsta starfabanka í Svíþjóð ásamt því að vera vinnumiðlun og bjóða upp á almenna ráðgjöf innan atvinnuleitar og ferli atvinnuumsókna.
Nordjobb
Markmið Nordjobb er að auka vitund um tungumál og menningu á Norðurlöndum með því að bjóða upp á sumarstörf í öðrum norrænum löndum og bjóða upp á spennandi og áhugaverð tónstundanámskeið.




English

