Vottorð U1 varðveisla réttar
Ef einstaklingur ætlar í atvinnuleit í öðru EES-landi er hægt að fá vottað að hann hafi verið atvinnuleysistryggður á Íslandi. Þetta er gert með því að sækja um U1 vottorð með því að fylla út eyðublaðið U1 og skila því til Vinnumálastofnunar/ Atvinnuleysistryggingasjóðs ásamt vottorði frá þeim vinnuvinnuveitendum sem þú hefur verið hjá s.l. 3 ár Þetta er hægt hvort sem einstaklingur á rétt á atvinnuleysisbótum hér á landi eða ekki.
Ef starfað hefur verið í EES-landi er einnig ágætt að verða sér út um U1 vottorð í því EES-landi sem starfað hefur verið fyrir heimkomu.





English

