Ráðgjöf og leiðbeiningar
Þjónusta:
Í ráðgjafardeild Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðsins starfa náms- og starfsráðgjafar og er boðið upp á ráðgjöf bæði við einstaklinga og hópa. Opnunartími deildarinnar er frá klukkan 9:00 – 15:00, nema á föstudögum til 12:00. Viðtalstíma er hægt að panta síma: 515 4850
Einstaklingsráðgjöf:
Atvinnuleitendum stendur til boða einstaklingsráðgjöf og stuðningur við að takast á við atvinnumissinn og aðstoð við atvinnuleitina.
Upplýsingagjöf:
Í ráðgjafardeild eru veittar upplýsingar um námskeið sem atvinnuleitendum stendur til boða og þar fer skráning í námskeið fram. Þar er líka hægt að fá upplýsingar og umsóknareyðublöð um námsstyrki og námssamninga. Sömuleiðis er hægt að fá aðstoð við öflun upplýsinga um nám og námsleiðir í skólakerfinu.
Hópráðgjöf:
Ráðgjafar Vinnumiðlunar bjóða ráðgjöf við hópa og eru þrjú námskeið í boði. Boðið er upp á 1 – 2 námskeið á viku, eftir þörfum og fer skráning fram í ráðgjafardeild. Lesa nánar um námskeið.




English

