Atvinnuleit
Á þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar geta atvinnuleitendur fengið fjölþætta aðstoð við atvinnuleit endurgjaldslaust. Aðstoðin felst m.a. í upplýsingagjöf um atvinnuástand, atvinnuleysi og atvinnuhorfur ásamt því að ráðgjafar veita upplýsingar og ráðgjöf um náms- og starfsval og hvernig atvinnuleit sé best háttað. Til þjónustuskrifstofa berst jafnframt fjöldi óska um starfsmenn til ýmissa starfa og geta atvinnuleitendur fengið upplýsingar um laus störf á sínu svæði sem á landinu öllu.
Talið er að einungis um 35% starfa séu auglýst opinberlega, þ.e. í dagblöðum og tímaritum, en 65% starfa séu ekki auglýst. Það er því atvinnuleitandans að vera duglegur að „finna“ þessi störf.
Til eru margar og mismunandi leiðir við atvinnuleit og aldrei er hægt að vita hver þeirra kemur til með að ráða úrslitum. Það hefur hins vegar sýnt sig að því fleiri leiðir sem nýttar eru, því meiri eru möguleikarnir.
Skipuleggðu atvinnuleitina
Það er kostur að undirbúa vel og vinna skipulega að atvinnuleit, leitin verður áhrifaríkari og þú nærð takmarki þínu fyrr.
Skipulagning leitar krefst áætlun á tíma og fjölda umsókna í hverri viku. Gott er að miða við ákveðin fjölda umsókna fyrir hverja viku og ákveðin tíma í eftirfylgni af þeim umsóknum sem þú hefur sent.
Haltu utan um atvinnuleitina með því að skrá niður:
- Nafn á fyrirtæki
- Starfsheiti atvinnu sem sótt var um
- Upplýsingar um tengilið hjá fyrirtæki; nafn, sími, netfang
- Starfshlutfall
- Dagsetningu umsóknar
- Umsóknarfrest
- Hvernig sótt var um starfið (í gegnum auglýsingu, ábendingu, tengslanet, annað)
- Staða umsóknar; neitun, viðtal, annað
Hér getur þú sótt eyðublað sem hjálpar þér að skipuleggja atvinnuleitina þína
Finna atvinnu
Notaðu tengslanetið þitt: Skrifaðu niður tengiliðina í tengslanetinu þínu og láttu þá vita af þér, hvað þú getur og hvað þú vilt vinna við. Tengslanet þitt getur innihaldið fjölskyldu og vini, fyrrverandi vinnuveitendur og fyrrverandi vinnufélaga, kennara, samnemendur og vini, og tengla innan félagasamtaka eða annarra hópa sem þú ert virk/ur í.
Notaðu netið: Mörg fyrirtæki og stofnanir auglýsa laus störf á vefsíðum sínum eða taka á móti almennum umsóknum rafrænt í gegnum eigin vefsíður og geyma í eigin starfabanka, þar sem ekki eru öll störf auglýst. Með því að leggja inn umsóknir í þessa starfabanka hefur þú möguleika á að komast í beint samband við fyrirtækin og nálgast rétta starfið. Því er gott að leggja inn slíkar umsóknir og leita eftir lausum störfum hjá þeim fyrirtækjum/stofnunum sem þú hefur áhuga á að vinna hjá.
þjónusta vinnumiðlunar Vinnumálastofnunar: Atvinnuleitendur geta fengið fjölþætta aðstoð við atvinnuleit á þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar þar sem ráðgjafar veita upplýsingar og ráðgjöf um náms- og starfsval, og hvernig atvinnuleit sé best háttað.
Aðrar vinnumiðlanir: Ekki eru öll störf auglýst hjá vinnumiðlun Vinnumálastofnunar, því er ráðlagt að heimsækja vefsíður hjá öðrum vinnumiðlunum reglulega og skoða auglýst störf og leggja inn umsóknir þar.
Næsta skref: Umsóknarferli
Námskeið
Góð ferilskrá er mikilvægasta
„tækið″ í atvinnuleit.
Góð ferilskrá er mikilvægasta tækið í atvinnuleit.
Námskeið í boði í ferilskráargerð fer fram í húskynnum Vinnumálastofnunar Kringlunni 1. Ef þú hefur áhuga á að koma þá ekki hika við að hafa samband í síma 515 4800 og fá upplýsingar um hvenær næsta námskeið verður haldið í ferilskráargerð.
Námskeiðið er opið öllum í atvinnuleit.
Láttu sjá þig ef þú átt ekki ferilskrá!




English

