Atvinnuviðtal
Almennt er litið á atvinnuviðtal sem hindrun að settu marki, að fá starfið. Slíkt viðhorf getur valdið kvíða og streitu. Líttu á viðtalið sem tækifæri frekar en ógn og dragðu þannig úr kvíða. Viðtalið gefur umsækjanda kost á að segja betur frá sjálfum sér og leggja áherslu á styrkleika sína. Viðtalið er ekki próf heldur fyrst og fremst tækifæri á að láta hið besta í fari umsækjanda ná athygli þeirra sem taka viðtölin.
Undirbúningur
Aflaðu upplýsinga um fyrirtækið, um starfsemi þess, fjölda starfsfólks, starfslýsingu, hverjir taka viðtalið og svo framvegis. Slíkar upplýsingar er oftast hægt að nálgast á heimasíðum fyrirtækja og stofnana.
Vertu stundvís og snyrtileg/ur.
Alls ekki mæta of seint og heldur ekki of snemma. Gerðu ráð fyrir hugsanlegum töfum í umferðinni og farðu fyrr af stað en venjulega. Það getur haft neikvæð áhrif á spyrilinn ef umsækjandi mætir of snemma í viðtal. Bíddu úti þar til stutt er í viðtalið. Ákjósanlegast er að boða komu sína í móttöku fyrirtækis 3 – 5 mínútum fyrir áætlaðan tíma.
Umsækjandi ætti að athuga hvort að þekki einhvern hjá fyrirtækinu. Kunnugur aðili getur þjónað sem óformlegur meðmælandi og jafnvel talað beint við spyrilinn seinna og lagt inn gott orð.
Í viðtalinu
Heilsaðu öllum með handabandi og leggðu nöfn þeirra á minnið. Láttu þá hefja viðtalið. Horfðu í augun á þeim sem talar. Hlustaðu vel á spurningar og spurðu óhikað um frekari útskýringar ef þess þarf. Ekki tala á neikvæðan hátt um fyrri yfirmenn eða störf. Stjórnendur fyrirtækja leggja mat á hæfni umsækjanda til starfsins, persónulegt fas og framsetningu umsóknar og það sem umsækjandi vill koma á framfæri.
Skemmtilegt spjall
Viðtalið er tækifæri til að láta í té gagnlegar upplýsingar um atvinnuleitandann til spyrilsins, en ekki próf þar sem atvinnuleitandinn er í vörn við að svara spurningum. Umsækjandinn hefur margvíslega gagnlega færni, ákjósanleg starfsviðhorf og fjölbreytta, persónulega reynslu sem ekki er hægt að segja frá í smáatriðum í ferilskrá. Viðtalið gefur tækifæri til að minnast á og leggja áherslu á þessa ákjósanlegu þætti.
Markmið spyrlanna í viðtalinu eru að afla upplýsnga um hæfileika umsækjanda og meta hversu vel hann hentar í viðkomandi fyrirtæki og þá stöðu sem verið er að ráða í. Því er mikilvægt að slá á létta strengi í viðtalinu þannig að útkoman verði skemmtilegt spjall þar sem spyrillinn fær að kynnast innri manni umsækjanda.
Spurningar
Sá sem spyr þarf að finna út á stuttum tíma hvernig persóna þú ert og hvernig framtíðar starfsmaður þú munt verða. Þar af leiðandi eru spurningar spyrla oft þær sömu frá einu viðtali til annars. Gefðu þér tíma að svara hverri spurningu. Það sýnir íhugun og yfirvegun. Umræða um félagslíf og tómstundir er jákvæð og á alls ekki að forðast. Þú verður persónulegri í huga þeirra í stað þess að vera samansafn upplýsinga um starfskunnáttu. Það hefur áhrif að vera jákvæður á allan máta, skýr í svörum og alls ekki forðast augnsamband.
Dæmi um spurningar frá atvinnurekendum
- Hvers vegna sækir þú um þetta starf?
- Hvað hefur þú fram að færa?
- Hvers vegna hættir þú í síðasta starfi? Hverjir voru kostir og gallar starfsins?
- Hvernig líkar þér að vinna undir álagi?
- Hvers vegna valdir þú þessa starfsgrein?
- Hvað kallar þú gott starfsumhverfi?
- Hvernig vinnur þú úr ágreiningi á vinnustað?
- Af hverju á ég að ráða þig?
- Segðu frá hugmynd sem þú hefur fengið og hefur verið hrint í framkvæmd á þínum vinnustað.
- Hvernig telur þú að samstarfsfólk/yfirmaður komi til með að lýsa þér?
- Hverjir eru helstu styrkleikar/veikleikar þínir?
- Hver eru langtímamarkmið þín varðandi þetta starf?
Það er mikilvægt að sýna jákvæðni og áhuga á umræddu starfi og því gott að vera tilbúinn með spurningar varðandi starfið. Það gæti reynst vel að æfa sig á spurningunum og jafnvel skrifa spurningar og svör á blað (þó ekki til að taka með í viðtalið).
Dæmi um spurningar fyrir umsækjanda
- Hvers vegna er þetta starf laust?
- Hvað felst í starfinu?
- Er til starfslýsing?
- Hverjir eru möguleikar á endurmenntun í starfi?
- Hver er lykillinn að árangri í þessu starfi?
- Hvernig er árangurinn metinn?
- Hversu langan tíma fæ ég að sanna mig í starfi?
Það sem getur verkað neikvætt á spyrla:
- Skortur á mannasiðum.
- Lágt sjálfsmat.
- Hroki.
- Áhugaleysi.
- Vanþekking á fyrirtæki eða starfsemi.
- Kærulaust útlit: snyrtimennska bágborin og fatnaður hirðulaus.
- Skortur á leiðtogahæfileikum.
- Óraunhæfar kröfur. Ofuráhersla á launaþáttinn og eiginhagsmuna viðhorf. Ekki litið til tækifæra í starfi og mögulegrar starfsþróunar.
Í fyrsta viðtali er vænlegra að bíða með spurningar um frí, laun og fríðindi einhverskonar. Slík umræða fer fram í næsta viðtali sem oft kallast launaviðtal.
Umræða um atvinnuleysi
Þegar spurt er út í hvers vegna þú sért ekki í vinnu núna þá er betra að forðast mikla umræðu um atvinnuleysi. Það má nefna að þú sért að íhuga þinn starfsframa og hvert hann stefnir. Að þú hafir ákveðið að taka frí frá vinnu í einhvern tíma og sért núna að hella þér út í starfsleit.
Lok viðtals
Í lok viðtals er gott að sýna þakklæti fyrir móttökurnar og láta í ljós áhuga á starfinu. Ef möguleiki er fyrir hendi, þá er dagur ákveðinn til að hafa samband aftur.
Tékklisti
- Æfðu þig á spurningunum
- Ekki mæta of seint – alls ekki of snemma heldur
- Snyrtilegt útlit – það fyrsta sem tekið er eftir
- Heilsa öllum með handabandi
- Augnsamband
- Brosa – hafa gaman
Hér eru nokkrar síður þar sem hægt er að sækja um störf:
Nokkrir punktar áður en sótt er um:
- Ferilskráin er mikilvægasta auglýsingatækið þitt
- Vertu snyrtileg/ur í atvinnuviðtölum og æfðu þig áður en þú ferð af stað
- Kynntu þér fyrirtækið sem þú ert að fara í viðtal hjá áður en þú mætir
- Ekki bíða eftir að síminn hringi, farðu og náðu þér í atvinnuviðtalið!
Gangi þér vel!
Námskeið
Góð ferilskrá er mikilvægasta tækið í atvinnuleit.
Námskeið í boði í ferilskráargerð fara fram hjá Ungt fólk til athafna. Námskeiðið fer fram í húskynnum Vinnumálastofnunar Suðurlandsbraut 22 (gengið inn að aftan). Ef þú hefur áhuga á að koma þá ekki hika við að hafa samband í síma 512 4730 og fá upplýsingar um hvenær næsta námskeið verður haldið í ferilskráargerð.
Námskeiðið er opið öllum í atvinnuleit.
Láttu sjá þig ef þú átt ekki ferilskrá!




English

