Hvað stendur atvinnuleitendum til boða hjá öðrum?
Forsíða:
Atvinnuleitandi - Ráðgjöf og leiðbeiningar - Hvað stendur atvinnuleitendum til boða hjá öðrum?Rauði kross Íslands - Hvað er í boði?
Sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa í samstarfi við SÍBS og Háskóla Íslands unnið að því að kortleggja upplýsingar um frístundir og námskeið sem kosta lítið eða ekkert. Markmiðið er að safna upplýsingum í gagnabanka á einn stað til að auðvelda fólki að nýta þau tækifæri til afþreyingar og fræðslu sem standa landsmönnum til boða.
Sérstök úrræði eru fyrir atvinnuleitendur, upplýsingar um menntun og fræðslu, einnig list, menningu og tómstundir, ráðgjöf, þjónusta sveitarfélaga ásamt öðrum ýmsum upplýsingum.
Afraksturinn er bæklingur, sem hlotið hefur nafnið „Hvað er í boði?“ Í bæklingnum eru ítarlegar upplýsingar. Hægt er að nálgast „Hvað er í boði?“ bæklinginn á prentvænu formi hér.
Nýttu kraftinn - Hvatning og stuðningur fyrir atvinnulausa að ósekju
Hugmyndafræðin á bakvið NÝTTU KRAFTINN miðar að því að hvetja atvinnulausa einstaklinga að nýta tíma sinn og kraft á jákvæðan og uppbyggilegan hátt.
NÝTTU KRAFTINN er 3ja mánaða ferli þar sem rauði þráðurinn er að ganga til hvers dags sem vinnudagur væri -gera sjálfan sig þannig samkeppnishæfari í atvinnuleitinni. Markviss tímaskráning sem nemur a.m.k. 4 tímum á hverjum virkum degi miðað við fjölbreytileg verkefni og vottanir viðurkenndar af atvinnulífinu. Boðið upp á áhugasviðspróf til að víkka hugann og skapa ný tækifæri sem og tengingu við vinnumarkaðinn en hver og einn fær Mentor úr atvinnulífinu sem hann hittir á 2ja vikna fresti yfir tímabilið.
Hvað kostar að taka þátt í Nýttu Kraftinn?
3 mánaða ferlið með öllu sem í því felst þ.m.t. áhugasviðsprófi, hádegisverði og kaffi kostar 53.500 kr. og hafa flest stéttarfélög greitt fyrir sína félagsmenn. Vinnumálastofnun er bakhjarl ef stéttarfélags nýtur ekki við ef viðkomandi á bótaréttindi hjá VMST.
Lesa nánar um NýTTU KRAFTINN
Stuðningur við atvinnulausa til heilsuræktar
Alþýðusamband Íslands, ASÍ, og Samtök heilsuræktarstöðva, SHS, gerðu 6. febrúar 2009 rammasamning um að styrkja einstaklinga í atvinnuleit til að stunda heilsurækt. Samningur gildur til og með 31. desember 2010.
Þau stéttarfélög innan ASÍ sem gerast aðila að samningnum styrkja félagsmenn sína sem hafa misst vinnuna og eru atvinnulausir um kr. 2.000 að lágmarki á mánuði til að stunda heilsurækt. Heilsuræktarstöðvar innan SHS veita þessum viðskiptavinum að lágmarki 50% afslátt á greiðslu af mánaðarkortum stöðvanna. Atvinnulausum félagsmönnum aðildarfélaga ASÍ sem gerst hafa aðilar að samningnum stendur nú til boða mánaðarkort á sérkjörum með stuðningi félagsins. Algengasta verð er frá 1.500 til 2.000 kr. á mánuði. Eftirtaldar heilsuræktarstöðvar eru þáttakendur í verkefninu: Árbæjarþrek, Baðhúsið, Bjarg, Dansrækt JSB, Hress, Hreyfing, Sporthúsið, Toppsport, og World Class.
Frí sund- og bókasafnskort fyrir atvinnuleitendur á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi sínum þann 20. apríl sl. að atvinnuleitendur í Reykjavík og fólk sem nýtur fjárhagsaðstoðar til framfærslu fái frían aðgang að sundstöðum borgarinnar og frí notendakort í Borgarbókasafni Reykjavíkur og útibúum þess til ársloka 2010.
Þeir sem vilja nýta sér tilboðið geta nú sótt um sund- og bókasafnskort hjá þjónustufulltrúum á þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar frá 7. til 20. hvers mánaðar.
Óskað er eftir að viðkomandi hafi meðferðis persónuskilríki og sé um atvinnuleitanda að ræða þarf hann að hafa meðferðis síðasta greiðsluseðil frá Vinnumálastofnun.
Ef um sundkort er að ræða þá mun þjónustufulltrúi ganga frá skráningu og upplýsa umsækjanda um í hvaða sundlaug borgarinnar hann geti sótt kortið og hvenær það verði tilbúið.
Ef um bókasafnskort er að ræða þá staðfestir þjónustufulltrúi með bréfi til umsækjenda rétt hans til bóksafnskorts. Umsækjandi framvísar staðfestingunni og persónuskilríkjum á næsta bókasafni sem útbýr bókasafnskortið á meðan beðið er.
Í Reykjavík eru sjö sundlaugar vítt og breytt um borgina. Einnig eru starfandi sjö bókasöfn auk bókabíla sem veita fjölbreytta þjónustu þ.e. útleigu bóka, tímarita, hljómdiska og mynddiska.
Þjónustumiðstöðvar eru í sex hverfum borgarinnar og sinna þjónustu við einstaklinga og fjölskyldur, sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, frístundaráðgjöf auk almennrar upplýsingagjafar um starfsemi Reykjavíkurborgar auk þess að sinna félagsstarfi, rekstri þjónustuíbúða og heima- og stuðningsþjónustu svo fátt eitt sé nefnt. Nánari upplýsingar um þjónustumiðstöðvar má finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is.
Nánari upplýsingar veitir: Sólveig Reynisdóttir, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts í síma: 411 1200
Hjá stéttarfélögum
Verslunarmannafélag Reykjavíkur (VR)
Veistu hvað stendur þér til boða?
Efling stéttarfélag
Upplýsingar til félagsmanna Eflingar




English

