Umsóknarferli
Umsóknarferli umsækjanda
Atvinnuumsókn
Engar reglur eru til um það hvernig sækja á um starf eða hvernig atvinnuumsóknir eiga að líta út. Atvinnuumsóknir fela þó oftast í sér persónulegar upplýsingar um umsækjandann, lýsingu á menntun hans og starfsreynslu. Gott er að miða við að atvinnuumsókn sé ekki lengri en tvær blaðsíður, umsókn á annarri blaðsíðunni og ferilskrá á hinni.
Yfirleitt þarf að breyta og lagfæra atvinnuuumsóknir fyrir hvert starf sem sótt er um. Það gengur ekki að búa til eina umsókn og eina ferilskrá og ljósrita síðan án þess að yfirfara og breyta eftir aðstæðum áður en gögnin eru send. Gott er að eiga vandaða umsókn og ferilskrá á tölvutæku formi sem hægt er að aðlaga eftir þörfum. Einnig er mikilvægt að allar upplýsingar séu réttar og engar innsláttar- eða stafsetningarvillur því erfitt er að breyta fyrstu hughrifum sem umsóknin vekur!
Atvinnuumsókn má skipta í þrjá þætti:
- Ferilskrá; persónulegar upplýsingar, menntun, starfsreynsla, áhugamál, tölvu- og tungumálakunnátta, önnur kunnátta, tengiliður meðmæla. Dæmi um uppsetningu á feriskrá.
- Kynningarbréf; hvers vegna er sótt um starfið og hvað gerir þig hæfan umsækjenda
- Fylgiskjöl; meðmæli, prófskírteini og annað sem á við
Mikilvægt er að skíra gögnin annaðhvort með fullu nafni umsækjanda eða kennitölu.
Eftirfylgni
Leitaðu upplýsinga í gegnum síma; ef gefnar eru upp upplýsingar um tengilið vegna auglýsts starfs er sjálfsagt að hringja og kynna sig, sýna áhuga með fyrirspurn um starfið og ná um leið persónulegu sambandi.
Eftir að umsókn um atvinnu hefur verið send er gott að fylgja henni eftir til að sýna að þú hafir áhuga á starfinu og til að minna á þig. Hægt er að hringja til að athuga hvort að umsókn þín hafi borist atvinnurekanda nokkrum dögum eftir að umsóknarfresti lýkur. Einnig er hægt að hringja eða senda tölvupóst til að athuga með ráðningarferli og möguleika á atvinnuviðtali. Best er að sýna atvinnurekanda að þú hafir áhuga á starfinu!
Gott er að fylgja atvinnuumsóknum eftir með því að skrá þær hjá sér með upplýsingum um tengilið, umsóknarfresti, og dagsetningum með hvenær þú fylgdir umsókn eftir. Dæmi um yfirlit yfir atvinnuumsóknir.
Næsta skref: atvinnuviðtal
Tengd skjöl
Námskeið
Góð ferilskrá er mikilvægasta tækið í atvinnuleit.
Námskeið í boði í ferilskráargerð fara fram hjá Ungt fólk til athafna. Námskeiðið fer fram í húskynnum Vinnumálastofnunar Kringlunni 1. Ef þú hefur áhuga á að koma þá ekki hika við að hafa samband í síma 515 4800 og fá upplýsingar um hvenær næsta námskeið verður haldið í ferilskráargerð.
Námskeiðið er opið öllum í atvinnuleit.
Láttu sjá þig ef þú átt ekki ferilskrá!




English

