Nám er vinnandi vegur
Átaksverkefnið „Nám er vinnandi vegur“ er nú í boði fyrir atvinnuleitendur í annað sinn. Haustið 2011 voru 1.000 námspláss tekin frá fyrir einstaklinga án vinnu en næsta haust verða 400 ný pláss í boði.
Átakið er opið þeim atvinnuleitendum sem voru án vinnu hinn 1. janúar sl.
Þeir atvinnuleitendur sem fá skólavist innan átaksverkefnisins halda bótum sínum fram til áramóta.
Þá er gert ráð fyrir að þeir sem eru í lánshæfu námi hjá LÍN fari af bótum á námslán en þeir sem eru í ólánshæfu námi geta fengið námsstyrk frá Atvinnuleysistryggingasjóði í allt að þrjár annir þar til þeir öðlast rétt til námslána.
Þau 400 námspláss sem í boði eru skiptast í tvo flokka. Starfstengt nám við tiltekna framhaldsskóla (250 pláss)og frumgreinanám við háskóla sem ætlað er þeim einstaklingum 25 ára og eldri sem hyggja á háskólanám en hafa ekki stúdentspróf (150 pláss).
Frumgreinadeildir háskólanna: Annað tækifæri til háskólanáms.
Nám við frumgreinadeildir hefur reynst góður undirbúningur fyrir þá einstaklinga sem ekki hafa stúdentspróf en vilja öðlast rétt til náms við háskóla. Námið er 1-2 ára undirbúningsnám fyrir háskóla, sérstaklega ætlað þeim sem eru eldri en 24 ára. Kennslufræði tekur almennt mið af fullorðinsfræðslu þar sem rík áhersla er á verkefna- og hópavinnu.
Frumgreinadeildir eru starfræktar við þrjá skóla, Háskólann á Bifröst, Keili (í samstarfi við Háskóla Íslands) og Háskólann í Reykjavík. Gert er ráð fyrir allt að 50 plássum fyrir atvinnuleitendur í hverjum skóla.
Starfstengt nám við framhaldsskóla: Sköpun - Tækni - Umönnun
Þá atvinnuleitendur sem langar í iðnnám eða annað starfstengt nám er bent á neðangreinda valda framhaldsskóla. Á næstu árum mun atvinnulífið sérstaklega leita að menntuðu fólki í tækni- og tölvugeiranum, ýmsum skapandi greinum og umönnunargreinum og er sérstaklega vakin athygli á þeim möguleikum sem í slíku felast.
Eftirtaldir skólar eru í boði innan átaksins. Auk þeirra geta atvinnuleitendur á landsbyggðinni sótt um nám við skóla í sinni heimabyggð og er bent á að snúa sér til næstu þjónustumiðstöðvar Vinnumálastofnunar hvað varðar nánari upplýsingar um slíkt.
Borgarholtsskóli (allt að 20 pláss)
Borgarholtsskóli er fjölbreyttur og framsækinn skóli sem leggur áherslu á að allir fái nám við sitt hæfi. Í boði eru margar námsleiðir í listnámi, iðnnámi og starfsnámi. Sérstök athygli er vakin á námi í málm- og véltæknigreinum við skólann en mikill skortur er á starfsfólki með slíka menntun í íslensku atvinnulífi.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla (allt að 20 pláss)
FÁ starfrækir Heilbrigðisskólann sem býður upp á fjölbreytt nám t.d. fyrir sjúkraliða, tanntækna, læknaritara, heilsunuddara og lyfjatækna.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti (allt að 40 pláss)
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti hefur frá upphafi verið í fararbroddi skóla er vinna að virkri tengingu bóknáms, listnáms og verknáms. Skólinn býður m.a. upp á sérstaka innflytjendabraut, listnámsbraut með kjörsviðum í myndlist og textíl og rafvirkjabraut.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja (allt að 55 pláss)
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er skóli Suðurnesjamanna og nemendur hans eru úr öllum byggðarlögum svæðisins auk þess sem alltaf eru í skólanum nokkrir nemendur annars staðar frá. Nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja geta valið um fjölbreytt iðnnám og styttri starfsnámsbrautir. Skólinn útskrifar t.d. sjúkraliða og er eini framhaldsskólinn á landinu sem býður kennslu í netagerð.
Iðnskólinn í Hafnarfirði (allt að 25 pláss)
Iðnskólinn í Hafnarfirði byggir á gömlum grunni hefðbundins iðnnáms en hefur einnig haslað sér völl sem listnámsskóli. Skólinn leggur áherslu á hefðbundnar iðngreinar og eru um tveir þriðju hlutar nemenda í iðn- og starfsnámi. Um einn fjórði hluti nemenda er í listnámi. Skólinn býður upp á nám bæði í málm- og rafiðn sem tengist uppbyggingu í iðnaði á svæðinu.
Menntaskólinn í Kópavogi (allt að 35 pláss)
MK býður metnaðarfullt verknám í takt við þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma. Sérstaða skólans er m.a. nám á sviði hótel og matvælagreina og ferðamálanám. Í hótel og matvælanáminu eru á meðal námsleiða bakaraiðn, framreiðsla, kjötiðn og matreiðsla. Innan ferðamálanáms er boðið upp á leiðsögumennsku, ferðamálafræði og flugþjónustu. Atvinnuleitendum sem stunduðu nám við MK sl. haust gekk almennt afar vel í námi.
Tækniskólinn (allt að 60 pláss)
Tækniskólinn er stærsti framhaldskóli landsins og byggir á langri og merkri sögu sem tengist atvinnulífi landsins á marga vegu. Meðal undirskóla Tækniskólans eru Fjölmenningarskólinn, Hönnunar- og handverksskólinn, Margmiðlunarskólinn, Skipstjórnarskólinn, Véltækniskólinn og Upplýsingatækniskólinn.
Verkmenntaskólinn á Akureyri (allt að 15 pláss)
VMA leggur áherslu á fjölbreytt verknám með skipulagi sem gerir nemendum kleift að sníða námið að aðstæðum sínum og þörfum. Meðal þeirra leiða sem skólinn býður upp á er nám á sviði matvæla, lista og heilbrigðisgreina auk fjölbreytilegs iðnnáms.
Frekari upplýsingar um framhaldsskóla er að finna á www.menntagatt.is.
Ákvörðun um að hefja nám er stór ákvörðun sem varðar alla framtíð þess sem hana tekur. Til að ná árangri þarf ríka ástundun og mikla vinnu sem skilar fjölbreyttari starfstækifærum til framtíðar. Árangur þeirra atvinnuleitenda sem hófu nám sl. haust var góður og brottfall minna en gert var ráð fyrir eða 16,7% í framhaldsskólum, nokkru hærra í háskólanámi sem nú er ekki í boði en í frumgreinanámi var brottfall að meðaltali lægst. Í nokkrum skólum luku yfir 90% atvinnuleitenda námi á haustönn.
Hvað á ég að gera ef ég vil sækja um Nám er vinnandi vegur
- Þú sækir um námsvist í framhaldsskólum á www.menntagatt.is eða á heimasíðum Bifrastar, Keilis og HR. Þú tekur fram við umsókn að þú sért atvinnuleitandi.
- Fáir þú skólavist hefur þú samband við ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun sem gerir við þig námssamning að uppfylltum skilyrðum.
Nánari upplýsingar:
Frekari upplýsingar um framhaldsskóla er að finna á www.menntagatt.is
Skólar sem bjóða pláss:
Frumgreinadeildir háskólanna - Annað tækifæri
Starfstengt nám við framahaldsskóla: SKöpun - Tækni - Umönnun
Borgarholtsskóli (allt að 20 pláss)
Fjölbrautaskólinn við Ármúla (allt að 20 pláss)
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti (allt að 40 pláss)
Fjölbrautaskóli Suðurnesja (allt að 55 pláss)
Iðnskólinn í Hafnarfirði (allt að 25 pláss)
Menntaskólinn í Kópavogi (allt að 35 pláss)
Tækniskólinn (allt að 60 pláss)
Verkmenntaskólinn á Akureyri (allt að 15 pláss)




English

