Ungt fólk til athafna
Ungt fólk til athafna - fyrir unga fólkið og framtíðina!
Með átakinu Ungt fólk til athafna sem nýlega var ýtt úr vör af félags- og tryggingamálaráðuneytinu er markmiðið að aldrei skuli líða meira en þrír mánuðir frá því að einstaklingur á aldrinum 16 - 29 ára verður atvinnulaus þar til honum er boðið starf, námstækifæri, starfsþjálfun eða þáttaka í öðrum verðugum verkefnum.
Erlendar rannsóknir hafa sýnt að ungt fólk er sérstaklega viðkvæmt fyrir afleiðingum langtímaatvinnuleysis og þykir sýnt að afleiðingar þess að hefja starfsferilinn í atvinnuleysi geti haft áhrif starfsævina á enda. Með átakinu er verið að gefa ungum atvinnuleitendum möguleika á að koma sér af stað í námi, öðlast starfsréttindi eða kynnast nýjum starfsvettvangi, sér að kostnaðarlausu.
Vinnumálastofnun sér um framkvæmd átaksins og er það í höndum þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar á landsbyggðinni en í Reykjavík er þjónustuskrifstofa Ungs fólks til athafna í Kringlunni 1.





English

