Ferlið - Næstu skref
Ráðgjafar Vinnumálastofnunar boða unga atvinnuleitendur til sín þar sem þeir fá kynningu á fjölbreyttum tækifærum og verkefnum sem þeim býðst að takast á við í atvinnuleysinu. Þeim býðst sömuleiðis öflug náms- og starfsráðgjöf og tækifæri til að kortleggja áhugasvið sitt og hæfni og aðstoð við að setja sér markmið til framtíðar varðandi náms- og starfsval.
Ert þú á aldrinum 16 - 24 ára og hefur áunnið þér rétt til atvinnuleysisbóta?
Nú standa þér til boða fjölbreytt tækifæri; nám, starfsþjálfun, sjálfboðaliðastörf og margt fleira. Þú getur örugglega fundið eitthvað sem þér finnst spennandi og áhugavert.
Hvernig gengur þetta fyrir sig?
Fundur - Fyrst ert þú boðuð/aður á fund, það er gert með símtali, sms eða tölvupósti. Ekki gleyma að það er skyldumæting á fundinn. Ef þú vilt byrja strax getur þú líka komið og kynnt þér úrræðin hjá Vinnumálastofnun.
Á fundinum er haldin góð kynning á þeim tækifærum sem standa þér til boða. Eftir fundinn velur þú það sem þér finnst vera áhugaverðast. Ef þú getur ekki ákveðið þig eða telur þig þurfa frekari aðstoð þá getur þú fengið aðstoð ráðgjafa strax eftir fundinn. Ef þig langar að fá aðstoð við að skoða framtíðarmöguleika þína varðandi val á námi eða starfi þá getur þú fengið aðstoð náms- og starfsráðgjafa á þinni þjónustuskrifstofu.
Boðun í úrræði - Eftir fundinn fara ráðgjafar yfir óskir þínar. Fljótlega ert þú boðuð/aður til Vinnumálastofnun til þess að skrifa undir samning þar sem þú skuldbindur þig til að mæta í það úrræði sem þú valdir þér.
Mæting í úrræði - Mikil áhersla er lögð á að þú mætir í það úrræði sem þú valdir þér. Þú getur misst rétt þinn til bóta mætir þú ekki.
Tækifæri - Nýttu þetta tækifæri sem þér býðst til að bæta við færni þína og þar með styrkja stöðu þína á vinnumarkaði eða taka þátt í skemmtilegu og þroskandi sjálfboðaliðastarfi.




English

