Framhaldsskólanám
Forsíða:
Atvinnuleitandi - Úrræði - Átaksverkefni - Ungt fólk til athafna - Úrræði í boði - FramhaldsskólanámFramhaldsskólanám
Borgarholtsskóli
Bóknám til stúdentsprófs, iðnnám , listnám, styttra starfsnám og almenn námsbraut. Þau námstilboð sem skólinn býður upp á fyrir atvinnulausa einstaklinga á aldrinum 18-24 ára byggja á reynslu sem safnast hefur saman í skólanum við rekstur þessara brauta. Boðið er upp á 3 brautir, bíl- og málmtækni, skapandi miðlun, starf með börnum
Markmið, bíl- og málmtækni
Námstilboðið er ætlað þeim sem áhuga hafa á að kynnast námi í hefðbundnum iðngreinum. Auk þjálfunar í almennum greinum, námstækni, borgaralegri hæfni og upplýsingatækni kynnast nemendur störfum málmiðnaðarmanna og þeirra sem annast viðgerðir bíla.Markmið námsins er að veita þeim einstaklingum sem hafa verið atvinnulausir lengi tækifæri til að bæta hæfni sína og virkja þá til náms og veita þeim þannig tækifæri til að auka virði sitt á vinnumarkaði.
Markmið, skapandi miðlun
Þessi leið hentar þeim einstaklingum sem áhuga hafa á leggja fyrir sig nám eða störf sem tengjast listum og/eða hönnun. Auk þess að leggja stund á almennar greinar, námstækni, borgaravitund o.fl.Markmið, starf með börnum
Námið hentar þeim einstaklingum sem áhuga hafa á að kynnast því starfi sem fram fer á leikskólum og hafa huga á að starfa með börnum. Auk þjálfunar í almennum greinum, námstækni, borgaralegri hæfni og upplýsingatækni o.fl.
Lengd
Námið er metið til 30 f-eininga, kennt er í þrjá mánuði alla virka daga.
Ábyrgðaraðili
Borgarholtsskóli
Tækniskólinn, almennar greinar
Tækniskólinn býður upp á nám í almennum greinum; íslensku, ensku, stærðfræði, lífsleikni, félagsfræði, sjónlistum og íþróttum og valgreinum tréiðnaði, málmiðnaði og upplýsinga og tölvunotkun. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda í náminu með samvinnu milli nemenda og nemendahópa undir leiðsögn kennara. Gert verður ráð fyrir vettvangsferðum og heimsóknum í atvinnulífið. Aðeins þrjár til fjórar greina verða kenndar í hverri lotu.
Námsmat verður símat og byggt á verkefnum stöðukönnunum og virkni. Verkefnabundið nám gerir kröfu til annarskonar kennslu og framsetningar á verkefnum og námsefni.
Markmið
Að nemendur sem ljúka náminu geti innritast og haldið áfram í framhaldsskóla. Að allir áfangar séu að fullu matshæfir til eininga í framhaldsskólum. Að efla sjálfsvitund og félagshæfni nemenda. Að nemendur fái yfirsýn yfir verklegar og bóklegar brautir framhaldsskóla.
Lengd
Námið byggist á þremur átta vikna lotum.
Ábyrgðaraðili
Tækniskólinn
Fjölbrautaskólinn í Ármúla
Námið er á 1. þrepi og felst einkum í að styrkja nemendur og gera þá hæfari til að takast á við áframhaldandi nám. Nemendur taka ákveðinn kjarna sem hugsaður er til að ná lokamarkmiðum námsins. Nemendur velja annaðhvort ensku eða íslensku og verk- eða listnám þar sem boðið upp á stuttmyndagerð, myndlist, ljósmyndun, umhverfisvernd, fatahönnun og fatasaum. Allir áfangar eru metnir til eininga sem nýtast til lokaprófs á brautum framhaldsskóla. Mikil áhersla er lögð á verkefnavinnu, samvinnunám og vettvangsferðir.
Markmið
Virkja nemendur og gera þá hæfari til að stunda nám
Undirbúa nemendur til að takast á við áframhaldandi nám
Lengd
Námið er metið til 29 f- eininga og er kennt á dagvinnutíma á vorönn 2010.
Ábyrgðaraðili
Fjölbrautaskólinn í Ármúla
Iðnskólinn í Hafnarfirði
Iðnskólinn í Hafnarfirði býður upp á 14 vikna nám til f- eininga. Áfangar sem eru í boði eru próflausir en verkefnamiðaðir. Skylduáfangar eru enska 1A05, íslenska 1A05, stærðfræði 1A05, lífsleikni 1A05, heilsurækt 1A05, námstækni 1A01, nám og störf 1A01, upplýsingatækni 1A02. Í vali er boðið upp á ýmis hönnun 1A02, þar sem nemendum býðst að velja sér námskeið í ýmsum verklegum fögum eftir áhugasviði m.a. í ljósmyndun, leirmótun, gleri, málmsuðu, trésmíði, hársnyrtingu eða raflögnum.
Markmið
Almennu áfangarnir í STÆ, ENS, LKN og ÍSL1A05 er jafngildir við STÆ, ENS, LKN og ÍSL 102 áfanga í skólanámskrá Iðnskólans og verða metnir sem slíkir í áframhaldandi námi við skólann. Heilsuræktar áfanginn verðum metin sem ÍÞR101,111 og 201 sem eru bóklegir og verklegir áfangar.
Aðrir áfangar sem og val áfangar eru hugsaðir sem sjálfstyrkingar- og kynningaráfangar á námsleiðum og störfum sem tengjast þeim.
Lengd
Kennt er í 14 vikur, samtals 31 kennslustund á viku, 40 vikur hver.
lengd námskeiðs
Ábyrgðaraðili
Iðnskólinn í Hafnarfirði.
Hótelþjónustu- og barþjónanám hjá MK
Hagnýtt ferðaþjónustunám fyrir þá sem vilja starfa í hótel-, veitinga - og ferðageiranum. Námið gefur einnig aukin tækifæri til fagmenntunar á þessu sviði því það er metið til eininga sem síðan eru metnar sem hluti af námi í framreiðslu og ferða- og veitingagreinum. Farið er í undirstöðuþætti í þjónustu í sal, vinnu í vínstúku, gestamóttöku og þrifum ásamt því að efla tölvufærni og þjálfa samskipti í þjónustu.
Markmið
Þekking: Nemandinn aflar sér þekkingar á blöndun drykkja eftir stöðluðum uppskriftum. Lærir notkun á efnum, áhöldum og mælieiningum við vinnu í vínstúku. Þekkir viðmið og reglur um notkun glasa. Eykur þekkingu sína á kaffi og kaffifræðum. Þekkir framreiðsluferli bjórs og eimaðs áfengis. Einnig er lögð er áhersla á þjónustu í sal, upplýsingatækni og hreinlætisfræði .
Færni: Nemandinn öðlast færni í að sinna flestum almennum störfum á hótelum og veitinga- og gististöðum. Hann öðlast færni í notkun áhalda og tækja í vínstúku. Þjálfar færni sína í að aðlaga erlendar uppskriftir á óáfengum og áfengum drykkjum að íslenskum mælieiningum. Blandar drykki eftir stöðluðum uppskriftum og öðlast færni í að skreyta kokteilblöndur. Eflir færni sína í meðferð kaffivéla og umhirðu þeirra.
Hæfni: Nemandinn öðlast hæfni í almennri þjónustu í sal, gestamóttöku og þrifum. Hann eykur hæfni sína í að setja saman og blanda drykki þar sem fagleg sjónarmið, eðlisfræði og sköpunargleði eru höfð að leiðarljósi. Þátttakandi eykur hæfni sína í lögun kaffidrykkja.
Lengd
Kennt frá febrúar fram í maí 2010. Skólinn aðstoðar þátttakendur við að fá vinnu yfir sumartímann. metið til 18 eininga.
Ábyrgðaraðili
Menntaskólinn í Kópavogi
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður upp á 6 námsleiðir fyrir ungmenni í atvinnuleit; tréiðnir, listir, almenna leið, rafiðnir, listina að lifa og tölvunám. Hver námsleið stendur yfir í fimm vikur.
Leitast er við að bjóða upp á nám þar sem fjölbreytni er í fyrirrúmi, en um leið er reynt að mæta þörfum ungs fólks á sem bestan hátt. Á öllum leiðum verður undirbúningur fyrir starfsnám í framhaldsskóla sem og störf í samfélaginu og að auki er boðið upp á sjálfstyrkingarnám á öllum leiðum. Loks velja þátttakendur valáfanga einu sinni í viku sem eru; að eiga bíl, gerð ferilskrár, hagnýt tölvunotkun og fjármál daglegs lífs.
Leið 1, tréiðnir
Smíðavinna, verktækni, jákvæð sálfræði og samskipti auk valáfanga.Leið 2, listir
Teikning, ljósmyndun, jákvæð sálfræði og samskipti.Leið 3, almenn leið
Prjón, aðstoð við fatlaða, jákvæð sálfræði og samskipti.Leið 4, rafiðnir
Raflagnir, raftæki, jákvæð sálfræði og samskipti.Leið 5, listin að lifa
Betra útlit, heilbrigðisfræði, næringarfræði, skyndihjálp, jákvæð sálfræði og samskipti.Leið 6, tölvunám
Hagnýt tölvuvinna, vefmiðlun, jákvæð sálfræði og samskipti.
Lengd
Hver er leið er kennd í fimm vikur.
Ábyrgðaraðili
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti.
Nám í kjötiðn
Kjötiðnaðarmaður starfar við alla kjötvinnslu. Hann starfar í sláturhúsum, í kjötdeildum verslana þar sem hann sér m.a. um uppröðun í kjötborð, sölu og leiðsögn með neytendum. Á öllum þessum stöðum vinnur kjötiðnaðarmaðurinn að gæðastjórnun og innra eftirliti matvælafyrirtækja. Þá koma kjötiðnaðarmenn að sérhæfðum verkefnum s.s. kennslu, ráðgjöf, kynningar- og fræðslumálum og vinnu á rannsóknarstofum. Kjötiðnaðarmenn eiga í daglegum samskiptum við fjölmarga aðila s.s. neytendur, atvinnurekendur, opinbera eftirlitsaðila og aðrar starfsstéttir, s.s. matreiðslu- og framreiðslumenn, bakara og sölumenn.
Markmið
Meginmarkmið náms í kjötiðn er að nemendur öðlist þekkingu, færni og hæfni til að annast alla meginþætti í störfum kjötiðnaðarmanna, frá móttöku sláturafurða til fullunninnar vöru, við verkstjórn, sölu- og markaðsmál, vöruþróun og eftirlit með gæðum og hollustu.
Lengd
Þrír dagar í viku í kennslu og tveir dagar í viku í vinnustaðaþjálfun. 1. mars til 31. maí og 25. ágúst til 1. desember 2010.
Ábyrgðaraðili
Menntaskólinn í Kópavogi.




English

