Mímir símenntun
Forsíða:
Atvinnuleitandi - Úrræði - Átaksverkefni - Ungt fólk til athafna - Úrræði í boði - Mímir símenntunMímir símenntun
Færni í ferðaþjónustu
Færni í ferðaþjónustu er námsleið sem er hönnuð sérstaklega með þarfir ferðaþjónustu í huga. Námið hentar þeim sem hafa starfað eða stefna að starfi í atvinnugreininni. Samhliða náminu fá nemendur starfsþjálfun hjá fyrirtæki í ferðaþjónustu.
Markmið
Tilgangur námsins er að búa þátttakendur sem best undir störf í ört vaxandi atvinnugrein. Náminu er ætlað að efla persónulega, faglega og almenna færni til að veita gæðaþjónustu og takast á við fjölbreytt úrlausnarefni ferðaþjónustunnar.
Lengd
Færni í ferðaþjónustu er 160 stunda námsleið auk starfsþjálfunar
Ábyrgðaraðili
Mímir símenntun býður upp á Færni í ferðaþjónustu.
Grunnmenntaskólinn
Grunnmenntaskólinn er 300 kennslustunda nám fyrir þá sem hafa stutta skólagöngu að baki. Áhersla er lögð á að nemendur læri að læra, efli sjálfstraust sitt og styrki stöðu sína í almennum greinum
Markmið
Tilgangurinn er að stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms og auðvelda fólki að takast á við ný verkefni.
Lengd
Námið tekur xx mánuði og er kennt xx daga vikunnar.
Ábyrgðaraðili
Mímir símenntun, býður upp á Grunnmenntaskólann.
Aftur í nám
Aftur í nám er ætlað þeim sem eiga við lestrar- og skriftarörðuleika að stríða. Megináhersla er lögð á lestrar- og námsfærni nemenda. Tilgangur námsins er að styrkja sjálfstraust námsmanna og þjálfa þá í lestri og skrift með aðferðum Ron Davis.
Markmið
Markmiðið er að auka hæfni einstaklingsins til starfs og náms og stuðla að jákvæðu viðhorfi til áframhaldandi náms.
Lengd
Námið er 95 kennslustundir.
Ábyrgðaraðili
Mímir símenntun býður upp á Aftur í nám.
Fagnámskeið fyrir starfsmenn leikskóla
Námskeiðunum er ætlað að auka faglega og persónulega þekkingu og færni þeirra sem vilja vinna á leikskólum.
Markmið
Farið er í þætti er viðkoma starfi með börnum eins og t.d. uppeldi, þroska, skapandi starf, daglegt líf, leikinn og margt fleira
Lengd
Námskeiðið er 210 kennslustundir.
Ábyrgðaraðili
Mímir símenntun.
Sterkari starfsmaður - upplýsingatækni og samskipti
Námskeið sem ætlað er þeim sem vilja auka færni sína í upplýsingatækni og samskiptum og hafa ekki lokið framhaldsskóla.
Markmið
Í náminu er m.a. farið í ritvinnslu, töflureikni, sjálfsstyrkingu, samskipti, skipulag, frumkvæði og eflingu í starfi.
Lengd
150 kennslustundir
Ábyrgðaraðili
Mímir símenntun.
Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum
Ætlað þeim sem hófu nám á framhaldsskólastigi en hafa ekki lokið almennum bóklegum greinum með prófi.
Markmið
Farið er vel í grunnfög bóklegra greina; íslensku, dönsku, ensku, tungumálaval, stærðfræði og tjáningu.
Lengd
Námið er 300 kennslustundir
Ábyrgðaraðili
Mímir símenntun.
Verslunarfagnám
Nám ætlað þeim sem hafa unnið eða vilja vinna almenn störf í verslun og hafa ekki lokið framhaldsskóla.
Lengd
Námið er 510 stunda skólanám og 340 stunda vinnustaðanám.




English

