Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Búferlastyrkur

Vinnumálastofnun er heimilt að veita sérstaka styrki vegna búferlaflutnings atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins innanlands frá þeim stað þar sem atvinnuleitandi hefur lögheimili sitt, til þess staðar sem hann flytur lögheimili sitt, í því skyni að sækja vinnu hjá nýjum vinnuveitanda sem hefur sannanlega boðið honum starf. Styrkurinn nær bæði til flutnings á fjölskyldu atvinnuleitanda og á búslóð hans.

Búferlastyrkir eru þó ekki greiddir vegna búferlaflutnings atvinnuleitanda innan höfuðborgarsvæðisins.


Skilyrði

  • Atvinnuleitanda hafi sannanlega boðist starf í öðru sveitarfélagi en því sem hann hefur lögheimili í og hann geti ekki með auðveldum hætti sótt starfið frá lögheimili sínu
  • Atvinnuleitandi hafi flutt lögheimili sitt og fjölskyldu sinnar til þess sveitarfélags sem viðkomandi starfsstöð er í.
  • Starfið feli ekki í sér tímabundna ráðningu
  • Atvinnuleitandi eigi ekki auðvelt með að fá starf í því sveitarfélagi sem hann hefur lögheimili í að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar
  • Atvinnuleitandi hafi ekki áður fengið greiddan búferlastyrk á sama tímabili
  • Atvinnuleitandi hafi þegar lagt út fyrir kostnaði vegna flutninganna

Í sérstökum undantekningartilvikum er Vinnumálastofnun heimilt að veita búferlastyrk án þess að öll ofangreind skilyrði séu uppfyllt enda hafi stofnunin metið aðstæður viðkomandi atvinnuleitanda heildstætt.


Útlagður kostnaður sem heimilt er að endurgreiða

skv. framlögðu afriti af  reikningum:

  1. Kaup á þjónustu sendibíla og flutningafyrirtækja á landi og sjó
  2. Leiga á sendibíl,  vöru- eða flutningabíl
  3. Fargjöld fjölskyldumeðlima með hópferðarbílum eða flugfélagi


Fjárhæð búferlastyrkja

Búferlastyrkur skal nema að hámarki 80% af kostnaði við flutning á fjölskyldu og búslóð atvinnuleitandans til þess sveitarfélags þar sem hin nýja starfsstöð er. Hámarksfjárhæð búferlastyrks skal þó aldrei vera hærri en sem nemur hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu