Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Starfsmenntaráð

Forsíða:

Atvinnuleitandi - Úrræði - Styrkir - Starfsmenntaráð

Starfsmenntaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu.
Til úthlutunar eru 55 milljónir króna
Umsóknarfrestur er til 25. ágúst 2010

Umsóknir falla í annan hvorn flokkinn:

Flokkur A
Fræðsluverkefni sem stuðla að atvinnusköpun og fela í sér nýsköpun og þróun.
Kostur er að um samstarf ólíkra aðila sé að ræða, t.d. frumkvöðla, framleiðenda og seljenda.
Umsækjendur geta verið samstarfsklasar, félög og fyrirtæki og aðrir sem stunda sprotastarf.

Flokkur B
Þróunarverkefni á sviði fræðslu, ráðgjafar eða þjálfunar sem miða að því að vinna gegn neikvæðum áhrifum breytinga í kjölfar efnahagskreppu s.s. vegna breytinga á störfum, stöðu einstaklinga á vinnumarkaði og á starfsemi fyrirtækja og stofnana. Niðurstöður verkefna verða að hafa almenna skírskotun og geta yfirfærst á önnur svið.


Markmiðin sem Starfsmenntaráð gengur út frá við val á verkefnum eru að:

  • Verkefnin nái til sem flestra
  • Verkefnin mæti sýnilegri þörf á endurmenntun
  • Verkefnin séu unnin í samvinnu ólíkra aðila
  • Verkefni sem styrkt eru skulu framkvæmd næsta skólaár á eftir úthlutun
  • 75% af styrk er greitt út við úthlutun og 25% við lokauppgjör


Rétt til að sækja um styrk eiga

Samtök atvinnurekenda og launafólks, einstök fyrirtæki, einkaaðilar eða opinberir aðilar sem standa fyrir starfsmenntun í atvinnulífinu, starfsgreinaráð einstakra atvinnugreina og samstarfsverkefni á vegum tveggja eða fleiri framangreindra aðila.  Umsóknir frá skólum koma aðeins til greina þegar um er að ræða samstarf við framangreinda aðila, einn eða fleiri.

Uppgjör vegna styrkveitinga

Uppgjörum fyrir veitta styrki ber að skila eigi síðar en 12 mánuðum eftir styrkveitingu á þar til gerðum eyðublöðum.  Ef uppgjör liggur ekki fyrir innan 12 mánaða ber að skila inn greinargerð yfir stöðu verkefnisins til Starfsmenntaráðs.  Ráðinu er heimilt að veita frest til að skila inn lokauppgjöri, þó aldrei lengur en til næstu áramóta þar á eftir.

Sérstök athygli er vakin á ákvæðum höfundarréttarsamnings sem Starfsmenntaráð og styrkþegi gera sín á milli sem heimilar aðgang og afnot Starfsmenntaráðs af efni sem hlotið hefur styrk.


Nánari upplýsingar

Starfsmenntaráð

Starfsmenntaráð
Vinnumálastofnun

Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu
150 Reykjavík

Sími 515 - 4800
Bréfasími 511 - 2520

Netfang

www.starfsmenntarad.is

Umsókn

Umsóknareyðublað um styrki til starfsmenntaráðs er hægt að sækja á heimasíðu Starfsmenntaráðs.

Ath. umsóknarfrestur er til 25. ágúst 2010


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu