Námsúrræði
Námsúrræði sem atvinnuleitendum stendur til boða
Nám samhliða atvinnuleysisbótum
Námsmenn eru ekki tryggðir samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 nema þegar námið er hluti vinnumarkaðsaðgerða skv. ákvörðun Vinnumálastofnunar.
Atvinnuleitandi skal ávallt hafa samráð við ráðgjafa Vinnumálastofnunar um val á starfstengdu námi eftir að færni hans og staða hefur verið metin. Gerður skal tvíhliða námssamningur um slíkt vinnumarkaðsúrræði.
Nám sem skilgreint er sem vinnumarkaðsúrræði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er eftirfarandi:
- Nám sem haldið er samkvæmt námsskrá sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins hefur viðurkennt.
- Nám sem haldið er á vegum fræðslustofnana atvinnulífsins
- Önnur námskeið en þau sem talin eru í lið 1 og 2, og haldin eru á vegum Símenntunarmiðstöðva
- Námskeið sem haldin eru á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
- Námskeið/nám sem haldið er á vegum endurmenntunarstofnana á háskólastigi að hámarki 12 ECTS einingar á önn.
- Nám á námsbrautum á framhaldsskólastigi sem leiða til framhaldsskólaprófs, grunnnám á verk- og starfsnámsbrautum á framhaldsskólastigi og frumgreinanám sem boðið er á forsendum fullorðinsfræðslu, það er námið og uppbygging þess tekur mið af og er sniðið að þörfum fólks sem hefur verið þátttakandi á vinnumarkaði
- Námskeið á vegum endurhæfingarmiðstöðva
- Önnur námskeið sem eru líkleg til að styrkja fólk á vinnumarkaði að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar
Sjálfstætt starfandi einstaklingur sem er samþykkur á bráðabirgðaákvæði 26. gr. laga nr. 54/2006 um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar, á ekki rétt á námssamningi.
Atvinnuleitandi sem fellur undir bráðabirgðaákvæði um minnkað starfshlutfall sbr. 25. gr. laga nr. 54/2006 á rétt á námssamningi.
Námsúrræðinu er skipt upp í tvær gerðir af námssamningum; námssamning 1 og námssamning 2.
Lesa nánar um námssamning 1
Lesa nánar um námssamning 2




English

