Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Námssamningur 2

Námssamningur veitir atvinnuleitanda möguleika á að stunda nám í eina námsönn (þrettán vikur). Umsókn og skipulag námsins þarf að vinna í samráði við ráðgjafa Vinnumálastofnunar. Námssamningar eru háðir eftirfarandi skilyrðum:

  • Að umsækjandi hafa starfað sem launamaður samfellt á síðustu sex mánuðum á innlendum vinnumarkaði
  • Námið sé skilgreint sem vinnumarkaðsúrræði
  • Námið má ekki vera lánshæft hjá LÍN
  • Samráð skal haft við ráðgjafa Vinnumálastofnunar um val á námi og nám-skeiðum áður en skráning á námskeið fer fram
  • Ráðgjafi Vinnumálastofnunar leggur mat á umsókn

Skilyrði fyrir námssamningi 2

  • Vinnumálastofnun er heimilt að gera sérstakan námssamning 2 vegna námskeiða við atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins.
  • Atvinnuleitandi skal vera í virkri atvinnuleit á sama tíma og skal hann jafnframt vera í reglulegum samskiptum við ráðgjafa Vinnumálastofnunar.
  • Atvinnuleitandi skal eiga sex mánaða samfellda vinnusögu áður en hann sótti um atvinnuleysisbætur. Þar af er heimilt að taka tillit til þess hafi atvinnuleitandi verið í allt að þrjá mánuði á atvinnuleysisbótum á því tímabili.
  • Skilyrði er að námið kunni að nýtast atvinnuleitandanum við atvinnuleit að námi loknu að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar.

Dæmi um nám sem stunda má á námssamningi 2:

  • Kvöld- og fjarnám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 9 einingum.
  • Námskeið á vegum fræðslustofnana atvinnulífins, einkaskóla, endurmenntunarstofnana að hámarki 12 ECTS einingar á önn, og nýsköpunarmiðstöðva.

Undanþágur vegna háskólanáms

Heimilt er að stund nám á háskólastigi sem nemur að hámarki 10 ECTS háskólaeiningum á námsönn hvort sem um er að ræða nám í háskólum eða á vegum endurmenntunarstofnana háskólastigsins. Atvinnuleitandi skal vera í virkri atvinnuleit samhliða námi og upplýsa Vinnumálastofnun um námið. Atvinnuleitandi má ekki vera að koma úr námi. Vinnumálastofnun getur við sérstakar aðstæður veitt heimild til náms sem nemur allt að 20 ECTS háskólaeiningum. Er þá gerður við atvinnuleitanda námssamningur 2.

Skilyrði fyrir slíkri undanþágu:

  • Námið sé ekki lánshæft
  • Nýtist hinum tryggða beint við atvinnuleit
  • Atvinnuleysisbætur skerðast í samræmi við umfang náms. Sjá meðfylgjandi töflu
  • Atvinnuleitandi sé að koma af vinnumarkaði
  • Leggja þarf fram staðfestingu frá skóla um einingafjölda
  • Heimilt er að stunda nám með skerðingu í eina önn með möguleika á framlengingu í aðra önn og verða þá að liggja fyrir gild rök, svo sem að ljúka námi.
  • Skerðingin tekur gildi frá þeim degi sem nám hefst og þar til atvinnuleitandi skilar staðfestingu um námslok.
  • Atvinnuleitandi ber ábyrgð á að tilkynna um námslok svo að skerðingu ljúki

Ef námið er skipulagt af endurmenntunarstofnunum háskólanna er heimilt að stunda allt að 12 ECTS eininga nám án skerðingar, samanber e-liður reglugerðar 13/2009 1.gr.

 

 ECTS-einingar                                 Skerðingarhlutfall          

11

37

12

40

13

43

14

47

15

50

16

53

17

56

18

60

19

63

20

66


Umsókn

Skila þarf umsókn til náms- og starfsráðgjafa á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, þar sem ráðgjafi leggur mat á umsókn.

Ráðgjöf

Á ráðgjafarsviði eru veittar nánari upplýsingar um námskeiðin, auk upplýsinga um námssamninga og námsstyrki. Ráðgjafar veita einnig upplýsingar um nám og námsleiðir. Hafa samband.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu