Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Námsstyrkur

Námsstyrkur Vinnumálastofnunar

Ef atvinnuleitendur hafa áhuga á að sækja önnur námskeið en þau sem Þjónustu-skrifstofa Vinnumálastofnunar býður geta þeir sótt um námsstyrk til að greiða niður námskeiðsgjald. 
Leiðbeiningar þessar eiga við um sjálfvalin námskeið - ekki þau sem eru skylduvirkni.  Skylduvirkninámskeiðin eru greidd 100% af VMST.

Vinnumálastofnun er heimilt að styrkja atvinnuleitanda sem er tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins vegna þátttöku hans í starfstengdu námi eða námskeiði sem viðurkennt er sem vinnumarkaðsúrræði. Styrkurinn er háður því skilyrði að ráðgjafi meti að hið starfstengda nám eða námskeið komi til með að nýtast atvinnuleitandanum beint við atvinnuleit og til þess fallið að skila honum árangri við að finna sér starf.

Atvinnuleitandi getur valið að fara á námskeið á vegum VMST sem greitt er að fullu eða námskeið sem hann velur að eigin frumkvæði og fær þá námsstyrk til að greiða hluta af námskeiðsgjaldi.   Ekki er mögulegt að nýta sér hvoru tveggja að fara á námskeið og sækja um námsstyrk á sömu önninni, velur á milli og getur einungis fengið eitt úrræði  á önn. 

Bótaréttur viðkomandi skiptir ekki máli og undir þessar reglur falla einnig sjálftætt starfandi á eigin kt. (eftir 3 mánuði). 

Atvinnuleitendur í lækkuðu starfshlutfalli hafa ekki þennan rétt ef þeir eru komnir inn vegna samdráttar (er í 50% - 80% starfi) enda er litið á lækkað starfshlutfall sem vinnumarkaðsúrræði. 

Styrkurinn skal að hámarki nema 50% af heildar námskeiðsgjaldi en þó aldrei hærri en 70.000 kr. á önn eða á hverjum þrettán vikum.  Þetta á við þegar atvinnuleitandi hefur ekki nýtt námskeið eða önnur úrræði á vegum VMST á þessari sömu önn sem um ræðir.   Styrkurinn reiknast ekki í hlutfalli af bótarétti.  Einstaklingur sem er tryggður í atvinnuleysistryggingakerfinu  á rétt á vinnumarkaðsúrræðum óháð bótarétti. Undantekning er eins og áður segir það fólk sem fellur undir minnkað starfshlutfall vegna samdráttar í rekstri atvinnurekanda.

Atvinnuleitanda skal bent á rétt sinn hjá stéttarfélagi en ekki er gerð krafa um að hann sé nýttur.

* Í einstaka tilvikum getur Vinnumálstofnun greitt hærri styrk en sem nemur 50% s.s. ef Vinnumálastofnun getur ekki boðið upp á námskeið á eigin vegum vegna fámennis á dreifbýlum svæðum og kaupir því stakt námskeiðspláss fyrir atvinnuleitanda hjá námskeiðshaldara.

Umsóknir skulu berast náms- og starfsráðgjöfum Vinnumálastofnunar.

Meðfylgjandi gögn skulu fylgja umsókn: 

  • Námslýsing frá skóla/námskeiðshaldara (auk upplýsinga um staðsetningu náms og nafn fræðslustofnunar).
  • Námskostnaður (sundurliðaður ef annar er námskeiðsgjöld).
  • Lengd náms, tímasetning og fjöldi kennslustunda.
  • Gerð er sú krafa að atvinnuleitandi sæki jafnframt um styrk hjá stéttarfélagi sínu og skili til Vinnumálastofnunar upplýsingum um styrkupphæð
  • Umsókn um námsstyrk þarf að liggja fyrir a.m.k. fimm virkum dögum fyrir upphaf námskeiðs til að unnt sé að afgreiða umsóknina áður en námskeiðið hefst

Umsækjandi þarf að hafa verið á atvinnuleysisbótum í a.m.k. einn mánuð áður en hann ávinnur sér réttindi til námsstyrkjar.

Umsókn um námsstyrk þarf að liggja fyrir a.m.k. 5 virkum dögum fyrir upphaf námskeiðs til að unnt sé að afgreiða umsóknina áður en námskeiðið hefst.

Greiðslur

Námsskeiðshaldari sendir reikning til þjónustuskrifstofu VMST fyrir þeirri upphæð sem VMST á að borga.

Með skulu fylgja upplýsingar um heildarkostnað námskeiðs frá námskeiðshaldara s.s. upplýsingar um námskeið og námskeiðskostnað eða afrit af heildarreikningi vegna námskeiðs eða þeirrar greiðslu sem kemur í hluta atvinnuleitanda sjálfs að greiða.

 


Ráðgjöf

Á ráðgjafarsviði eru veittar nánari upplýsingar um námskeiðin, auk upplýsinga um námssamninga og námsstyrki. Ráðgjafar veita einnig upplýsingar um nám og námsleiðir. Hafa samband.

 

Umsókn

Skila þarf umsókn til náms- og starfsráðgjafa á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, þar sem ráðgjafi leggur mat á umsókn


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu