Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Reynsluráðning

Markmið

Markmið samningsins er að atvinnuleitandinn fái tækifæri til að öðlast reynslu í þeirri starfsgrein sem fyrirtækið eða stofnunin starfar innan og að veita fyrirtækinu eða stofnuninni tækifæri til að ráða atvinnuleitandann til reynslu í þeim tilgangi að stuðla að framtíðarráðningu hans innan fyrirtækisins eða stofnunarinnar.


Skilyrði

Skilyrði fyrir gerð reynsluráðningarsamnings er að ráðning atvinnuleitandans feli í sér aukningu á starfsmannafjölda fyrirtækis eða stofnunar og að fyrirtækið eða stofnunin skuldbindi sig til að ráða atvinnuleitandann með hefðbundnum hætti til a.m.k. jafn langs tíma og sem nemur gildistíma samningsins eftir að gildistíma hans lýkur.

Samningur

Vinnumálastofnun er heimilt að gera samning við fyrirtæki eða stofnun um reynsluráðningu atvinnuleitanda sem telst tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins í reynsluráðningu. Vinnumálastofnun, fyrirtækið eða stofnunin og atvinnuleitandinn skulu undirrita samninginn um samþykki sitt. Með undirritun sinni samþykkir atvinnuleitandinn að Vinnumálastofnun greiði grunnatvinnuleysisbætur hans ásamt 8% mótframlagi í lífeyrissjóð beint til fyrirtækisins eða stofnunarinnar sem greiðir honum laun. Fyrirtækið eða stofnunin skal greiða atvinnuleitandanum laun samkvæmt ákvæðum gildandi kjarasamnings.


Skilyrði fyrir ráðningu einstaklings á reynsluráðningarsamning

  • Viðkomandi einstaklingur eigi bótarétt og hafi verið á atvinnuleysisbótum í a.m.k. 1 mánuð.
  • Fyrirtækið þarf að vera skráð, sé í öruggum rekstri, þ.e. ekki í rekstrarörðugleikum eða á leið í gjaldþrot.
  • Fyrirtækið hafi eins árs rekstur eða meira að baki (sjá kennitölu).
  • Ráðning atvinnuleitanda feli í sér aukningu á starfsmannahaldi fyrirtækis.
  • Samningurinn er gerður til sex mánaða að hámarki og hann má ekki framlengja vegna sama einstaklingsins, nema hann hafi skerta starfsorku og þurfi nauðsynlega lengri tíma
  • Starfsmenn í úrræðinu skulu að jafnaði ekki vera fleiri en 4 hjá sama fyrirtæki eða hlutfallslega fleiri en 25% af heildarstarfsmannafjölda.
  • Að jafnaði verði ekki gerðir samningar við þau fyrirtæki sem hafa nýlega verið með 6 mánaða samning við annan einstakling.
  • Samningurinn er gerður til sex mánaða að hámarki og hann má ekki framlengja vegna sama einstaklings, nema að hann hafi skerta starfsorku og þurfi nauðsynlega lengri tíma

 

 

Umsóknarferli

  • Atvinnurekandi fyllir út og skráir atvinnu rafrænt á heimasíðu þjónustuskrifstofu og hefur því næst samband við starfsfólk þjónustuskrifstofunnar um framhaldið
  • Ráðgjafar VMST finna alla jafna einstaklinga í verkefnin. Leitast verði við að miðla til að byrja með atvinnuleitendum með 100% bótarétt
  • Umsókn um starfsþjálfun - Gerður er þríhliða samningur atvinnurekanda, atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar. Allir aðilar þurfa að undirrita hann
  • Samningarnir skulu gerðir til allt að 6 mánaða. Framlenging eftir 6 mánuði kemur ekki til greina nema viðkomandi hafi skerta starfsorku
  • Úrræðið skal vera samfellt í tíma

 


Greiðslur

  • Greiðsla til fyrirtækis tekur mið af bótarétti einstaklings (sjá dæmi um útreikning neðar)
  • Reikningur skal vera númeraður og úr bókhaldi fyrirtækisins/stofnunarinnar og vera án VSK.
  • Atvinnurekandi sendir reikninginn til:

    Vinnumálastofnun
    b.t. Gunnars Richardssonar
    Kringlunni 1
    103 Reykjavík
  • Gunnar yfirfer reikningana. Reikningarnir skulu vera í samræmi við efni samningsins.
  • Afrit launaseðils skal fylgja reikningi
  • Á reikningnum skal koma fram:
    a. Nafn atvinnuleitanda
    b. Tímabil samnings (hvenær viðkomandi fer á samning og hvenær hættir)
    c. Bótaréttur einstaklings
    d. Kjarasamningur sá sem laun eru tekin eftir eða miðuð við
  • Þegar reikningur hefur verið yfirfarinn, er hann sendur til fjármálastjóra VMST.

Útreikningur - dæmi:

Athugið að frá 01. janúar 2012 eru atvinnuleysisbætur 167.176

Greiðslur vegna atvinnuleitanda með 100% bótarétt eru kr. 167.176 pr. mánuð + 8% lífeyrissjóðsframlag = 180.550

Dæmi:

  • Atvinnuleitandi með 100% bótarétt vinnur hálfan mánuð: 83.588 + 8%=90.275.
  • Atvinnuleitandi með 50% bótarétt vinnur hálfan mánuð 41.794 + 8% = 45.137.
  • Atvinnuleitandi með 100% bótarétt vinnur 75% hluta mánaðarins: 167.176x75%+ 8%= 135.412

Frá og með 2. september 2011 telja starfstengd vinnumarkaðsúræði eins og starfsþjálfun, reynsluráðning, átaksverkefni og starfsorkan ekki af bótarétti atvinnuleitanda. Þannig að bótaréttur þessa fólks er í raun frystur á meðan á úrræðinu stendur. Allir þeir sem eru í vinnumarkaðsúrræðum eru því afskráðir og þurfa ekki að stimpla sig á meðan þeir eru í vinnu.

 

Verði ekki af áframhaldandi ráðningu þarf atvinnuleitandi að koma á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og skrá sig og skila vottorði vinnuveitanda fyrsta daginn sem hann er í atvinnuleit á ný.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu