Atvinnuleysisbætur með erlendis
Atvinnuleit í Evrópu með E-303
Ef þú er ert atvinnulaus og færð atvinnuleysisbætur getur þú farið í atvinnuleit til Evrópu og haldið dagpeningum þínum. E-303 vottorðið veitir þér rétt til að fá greiddar atvinnuleysisbætur í allt að þrjá mánuði meðan þú ert að leita þér að vinnu í EES ríki. Umsóknareyðublað um E-303 er hægt að fá hjá Vinnumálastofnun um land allt, ásamt Vinnumálastofnun, Kringlunni 1, 105 Reykjavík og hér til hægri á rafrænu formi.
Aðalskilyrði til þess að fá útgefið E-303 vottorð eru að þú þarft að vera alveg atvinnulaus og hafa þegið bætur samfellt í fjórar vikur fyrir brottför og ekki hafnað atvinnutilboði.
Umsóknarfrestur um vottorðið er 3 vikur fyrir brottför. Gildistími E-303 vottorðsins er allt að 3 mánuðir.
Ef þú hefur sótt um og hættir við að nota E-303 vottorðið, skalt þú strax hafa samband við Vinnumálastofnun og tilkynna að þú ætlir ekki að nota það.
Ef þú ætlar í atvinnuleit til annars EES-ríkis er líka ágætt að fá vottað að þú hafir verið atvinnuleysistryggð/ur á Íslandi s.l. 3 ár, hvort sem þú átt rétt á atvinnuleysisbótum hér á landi eða ekki. Þetta er gert með því að sækja um E-301/N-301 vottorð hjá Vinnumálastofnun og láta með því fylgja vottorð allra vinnuveitanda sem þú hefur starfað hjá s.l. 3 ár. Umsóknareyðublöðin um E-301 og eyðublöðin fyrir vottorð vinnuveitanda er hægt að fá hjá Vinnumálastofnun og hér til hægri á rafrænu formi.
E-301 vottorðið er venjulega sent í pósti til umsækjanda á heimilisfang hans erlendis. Ef þú færð vinnu í Evrópu og verður síðan atvinnulaus þá getur þú aukið við rétt þinn í móttökulandinu með því að framvísa E- 301 vottorðinu.
EVRÓPSKA SJÚKRATRYGGINGAKORTIÐ
Evrópska sjúkratryggingakortið sem Tryggingastofnun gefur út veitir rétt til greiðslu sjúkrakostnaðar á opinberum sjúkrastofnunum í EES ríkjum vegna veikinda eða slysa.
Ef Íslendingur lendir óvænt í slysi eða veikindum á ferð um Evrópu veitir evrópska sjúkratryggingakortið korthafanum rétt til nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu á sama verði og heimamenn greiða. Kortið tryggir að viðkomandi greiðir aðeins hlut sjúklings í læknisþjónustu og lyfjum en þarf ekki að leggja út fyrir heildarupphæðinni og sækja um endurgreiðslu þegar heim er komið.
Kortið gildir eingöngu hjá heilsugæslustöðvum, sjúkrahúsum, apótekum og öðrum þjónustuaðilum með samninga við opinbera sjúkratryggingakerfið. Ekki er unnt að nota kortið þegar um er að ræða þjónustu sem veitt er á einkareknum sjúkrastofnunum sem starfa án samnings við hið opinbera. Brýnt er að ferðafólk, námsmenn, útsendir starfsmenn og aðrir sem dvelja tímabundið í Evrópuríki, gæti þess ávallt að leita til heilbrigðisþjónustu sem rekin er af hinu opinbera eða hjá aðilum sem hafa samninga við ríkið.
Kortið gildir yfirleitt í 2 ár svo fremi korthafi sé búsettur og sjúkratryggður á Íslandi. Ef hann flytur búsetu frá Íslandi fellur kortið almennt úr gildi.
Evrópska sjúkratryggingakortið er gefið út á einstaklinga, ekki fjölskyldur og einfaldast er að sækja um kortið á heimasíðu TR, www.tr.is. Aðeins þarf að slá inn kennitölu og haka við á umsóknarsíðunni hvort óskað er eftir því að maki og börn fái kortið líka. Að fáeinum dögum liðnum má vænta þess að kortið berist í póstinum.
Allir Íslendingar, og aðrir EES ríkisborgarar, sem sjúkratryggðir eru hér á landi eiga rétt á að fá evrópska sjúkratryggingakortið til notkunar á ferðalögum til annarra EES landa.
Eftirfarandi ríki Evrópusambandsins og EFTA mynda Evrópska efnahagssvæðið:
Austurríki, Belgía, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ísland, Ítalía, Kýpur (gríski hlutinn), Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noregur, Portúgal, Pólland, Spánn, Slóvakía, Slóvenía, Stóra Bretland (hið sameinaða konungsríki Stóra-Bretlands og Norður-Írlands), Svíþjóð, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.
Á milli Íslands, Noregs, Lichtenstein og Sviss er í gildi Vaduz-samningur sem hefur þau áhrif að nánast sömu reglur gilda gagnvart Sviss.
Nánari upplýsingar um sjúkratryggingakortið er hægt að fá hjá sjúkratryggingadeild Tryggingastofnunar ríkisins, Laugavegi 114, 150 Reykjavík. www.tr.is . Sími Tryggingastofnunar er 5604400.
SKRÁNING HJÁ VINNUMIÐLUN Í GISTILANDINU
Þegar þú kemur til þess ríkis á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem þú hyggst leita að vinnu, verður þú eins fljótt og auðið er að fara á þá vinnumiðlunarskrifstofu þar sem þú býrð til þess að skrá þig sem atvinnuleitanda.
Til þess að geta þegið dagpeninga allt vottorðstímabilið, verður þú að tilkynna þig innan 7 daga frá gildistöku vottorðsins. Dagsetningin kemur fram undir lið 3 á vottorðinu. Ef þú skráir þig eftir þennan tíma þýðir það að þú getur í fyrsta lagi fengið dagpeninga frá skráningardegi.
Ef þú getur ekki skráð þig í fyrsta skipti sem þú hefur samband við hina erlendu vinnumiðlun (í EES-ríkjunum), er nauðsynlegt að fá staðfestingu frá erlendum yfirvöldum um að þú hafir leitað til vinnumiðlunar til þess að skrá þig.
Ef vandamál koma upp varðandi greiðslu dagpeninga, verður þú að nota þá möguleika til kvörtunar sem fyrir hendi eru í gistilandinu á atvinnuleitartímabilinu. Vinnumálastofnun getur ekki meðhöndlað kvartanir vegna ákvarðana sem teknar eru í öðrum EES-ríkjum, og Vinnumálastofnun getur ekki borgað eftir á dagpeninga sem atvinnuleitandinn telur sig eiga rétt á í því ríki sem hann leitar að atvinnu. Í sumum EES-ríkjum getur liðið nokkur tími áður en dagpeningar verða greiddir.
HVERS KONAR GREIÐSLU FÆRÐU?
Yfirvöld í öðru EES-ríki greiða upphæð íslenska dagpeninga á vottorðatímabilinu. Umsækjandi verður að fara eftir þeim reglum þess lands sem hann dvelst í. Erlendu vinnumálayfirvöldin meta einnig hvort viðkomandi atvinnuleitandi sé virkur í atvinnuleit á vinnumarkaðinum.
Þar sem hér er um íslenska dagpeninga að ræða sem greiddir eru í öðru EES-ríki þar sem þú ert í atvinnuleit færðu sömu dagpeningaupphæð og ef þú hefðir verið áfram í atvinnuleit á Íslandi.
Vinnumálastofnun sér einungis um að erlend yfirvöld greiði nettódagpeninga, þ.e.a.s. brúttódagpeninga þína mínus skatta. Vinnumálastofnun sér til þess að staðgreiðsla sé innt af hendi til skattyfirvalda skv. þeim upplýsingum sem þú hefur gefið.
Umreikningur íslenskra dagpeninga til gjaldmiðils annars EES-ríkis er samkvæmt gengi sem ákveðið er af Evrópusambandinu.
EF ÞÚ FÆRÐ EKKI VINNU Í ÖÐRU EES-RÍKI
Tímabilið sem þú færð dagpeninga í EES-ríkinu er ekki hægt að framlengja.
Þú verður að muna eftir því að afskrá þig frá vinnumiðluninni í öðru EES-ríki áður en þú kemur aftur til Íslands. Auk þess þarftu að láta vinnumiðlunina fylla út E 303/5 fyrir heimkomu.
Þú getur ávallt komið til baka til Íslands innan vottorðstímabilsins, og þú átt rétt til dagpeninga á Íslandi frá þeim degi þegar þú hefur tilkynnt þig hjá vinnumiðlun á Íslandi ef skilyrðin eru að öðru leyti uppfyllt.
Til þess að geta fengið aftur rétt til dagpeninga á Íslandi verður þú að koma á vinnumiðlun á Íslandi áður en vottorðstíminn rennur út. Í tölulið 4 á vottorðinu getur þú séð hvenær í síðasta lagi þú verður að vera skráður hjá vinnumiðlun. Ef þessi dagur er laugardagur, sunnudagur eða helgidagur, getur þú skráð þig hjá vinnumiðluninni næsta virkan dag.
Þú hefur 7 daga eftir gildistíma vottorðsins til þess að skrá þig eftir komu til Íslands - eins og við brottför -. En þú getur ekki fengið dagpeninga fyrir þann dag eða daga sem fara í ferðalag til Íslands, þar sem þú ert hvorki virkur atvinnuleitandi á Íslandi né í öðru EES-ríki. Ef þú skráir þig ekki hjá vinnumiðlun á Íslandi, skv. ofangreindu missir þú rétt til dagpeninga, þegar þú kemur aftur til Íslands. Þá getur þú fyrst fengið dagpeninga þegar þú hefur unnið á Íslandi í minnst 3 mánuði í a.m.k. 25% vinnu.
Vinnumálastofnun getur í sérstökum tilfellum framlengt frestinn fyrir komu aftur til Íslands. Vinnumálastofnun getur t.d. heimilað þér að skrá þig eftir að vottorðið rennur út, ef þú getur sannað að þú sért að fara í viðtal vegna atvinnuumsóknar í öðru ríki. Komu til Íslands getur einnig verið frestað ef þú getur sýnt fram á, að þú hafir verið forfallaður sökum lasleika, en þá þarf að framvísa staðfestingu þess efnis (læknisvottorð). Þú verður að sækja um undanþágu áður en vottorðið rennur út. Frestur fyrir komu aftur til Íslands verður ekki byggður á því að þú ættir að vera í öðru EES-ríki fram yfir vottorðstímann í þeim tilgangi að bíða eftir dagpeningagreiðslu eða möguleikum á ferð aftur til Íslands.
Þú átt heldur ekki rétt á dagpeningum, þegar þú kemur til Íslands, ef þú ferð í frí í öðru EES-ríki í framhaldi af vottorðatímabilinu.
HELSTU SKILYRÐI FYRIR ÚTGÁFU E-303 VOTTORÐS ERU EFTIRFARANDI:
- Ríkisborgararéttur í EES-ríki
- Réttur til atvinnuleysisbóta á Íslandi við brottför
- Umsækjandi hafi þegið atvinnuleysisbætur samfellt í fjórar vikur fyrir brottfarardag
- Samfelld skráning hjá vinnumiðlun síðustu fjórar vikur fyrir brottfarardag
- Umsækjandi sé algjörlega atvinnulaus
- Umsækjandi hafi gefið kost á sér í vinnu í 4 vikur fyrir brottfarardag
- Umsækjandi ætli í virka atvinnuleit erlendis
- Umsóknarfrestur er 3 vikur fyrir brottfarardag
ENDURNÝJUN Á TÍMABILI
Þú getur fengið E-303 vottorð aftur útgefið ef að liðnir eru 6 mánuðir frá lokum fyrra tímabils og þú hefur starfað á þeim tíma á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 3 mánuði og uppfyllir að öðru leiti ákvæði laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
EF ÞÚ FÆRÐ ATVINNU Í ÖÐRU EES-RÍKI
Þú getur ekki verið atvinnuleysistryggður áfram á Íslandi ef þú færð vinnu í öðru EES-ríki. Þá starfsreynslu sem þú ávinnur þér í öðru EES-ríki með því að vera áfram tryggður þar ásamt því að vera í starfi, getur þú flutt til Íslands, ef erlend yfirvöld staðfesta tryggingar- og starfstímabilin á eyðublaðinu E 301/N 301. Þú getur snúið þér til viðkomandi atvinnuleysistryggingayfirvalda, áður en þú ferð til Íslands, og beðið þau um vottorðið E 301/N 301.
Ef þú færð hlutastarf á vottorðatímabilinu, eiga viðkomandi atvinnuleysistryggingayfirvöld í öðru EES-ríki að spyrja Vinnumálastofnun, hvort þú getir fengið útborgað hluta dagpeninga á vottorðstímabilinu samtímis hlutastarfinu.
EF ÞÚ VERÐUR ATVINNULAUS Í ÖÐRU EES-RÍKI EFTIR AÐ HAFA STARFAÐ ÞAR
Ef þú ætlar í atvinnuleit í öðru EES-ríki, þá getur þú fengið vottað að þú hafir verið atvinnuleysistryggður á Íslandi með E-301 vottorði og aukið þannig rétt þinn til atvinnuleysisbóta í öðru EES-ríki. Skilyrði er að þú hafir verið launamaður og greitt hafi verið tryggingagjald af launum þínum.
Til þess að erlend atvinnuleysistryggingayfirvöld geti reiknað með trygginga- og starfstímabilum á Íslandi, verður þú að hafa tímabilin staðfest með E-301/N-301 vottorði. Þú getur fengið vottorðið með því að sækja um það hjá Vinnumálastofnun, en mundu eftir því að þú hefur fyrst not fyrir vottorðið, ef þú verður atvinnulaus, eftir að þú hefur verið í starfi og einungis, ef þú óskar eftir því að dvelja áfram í öðru EES-ríki.
Vakin er athygli á að í nokkrum löndum þarf að leggja inn vottorðið hjá atvinnuleysistryggingayfirvöldum innan 8 vikna frá flutningi til landsins.





English

