Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Atvinnuleysisbætur úr erlendum tryggingarkerfum

Forsíða:

Atvinnuleysisbætur - Atvinnuleysisbætur úr erlendum tryggingarkerfum

Atvinnuleysisbætur frá öðru aðildarríki - E303

Ef þú ert ert atvinnulaus og með rétt til atvinnuleysisbóta í viðkomandi landi innan EES-ríkis, getur þú tekið með þér E-303 vottorð sem veitir þér rétt til þess að halda dagpeningum í allt að þrjá mánuði á meðan þú ert að leita þér að vinnu á Íslandi.


Vinnusaga frá öðru aðildarríki - E301

Ef þú ætlar í atvinnuleit á Íslandi þá getur þú fengið vottað að þú hafir verið atvinnuleysistryggður í öðru EES-ríki með E301 vottorði og aukið þannig rétt þinn til atvinnuleysisbóta á Íslandi. Skilyrði er að þú hafir verið launamaður og greitt hafi verið tryggingargjald af launum þínum.

Til þess að Vinnumálastofnun geti reiknað með tryggingar- og starfstímabilum í öðru EES-ríki, verður þú að hafa tímabilin staðfest með E301/N301 vottorði. Þú getur sótt vottorðin hjá Vinnumálastofnun og rafrænt hér til hægri, en mundu eftir því að þú hefur fyrst not fyrir vottorðið ef þú verður atvinnulaus, eftir að þú hefur verið í starfi og einungis ef þú óskar eftir þvi að dvelja áfram á Íslandi


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu