Greiðslur atvinnuleysisbóta
Greiðslur atvinnuleysisbóta fyrir allt landið fara fram hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar
Greiðslur atvinnuleysistrygginga fara fram 1. virka dag hvers mánaðar.
Athygli er vakin á því að að umsækjendur þurfa að staðfesta atvinnuleit sína mánaðarlega frá 20. – 25. hvers mánaðar til að tryggja greiðslur um mánaðarmót. Atvinnuleit er staðfest á "Mínar síður" atvinnuleitanda.
- Greiðslur til umsækjenda sem staðfesta atvinnuleit frá 20. - 25. hvers mánaðar eru afgreiddar fyrsta virka dag í mánuði.
- Greiðslur til umsækjenda sem staðfesta atvinnuleit sína milli 25. og 3. næsta mánaðar eru ekki afgreiddar fyrr en 5 virkum dögum eftir mánaðamót.
- Greiðslur til umsækjanda sem staðfesta atvinnuleit sína eftir 3. næsta mánaðar greiðast með útborgun næstu mánaðarmóta.
Hafa samband
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1-3
545 Skagaströnd
Sími: 582 4900,
Bréfasími 582 4920,
Netfang: greidslustofa@vmst.is
Greiðslustofa er opin frá klukkan 9:00 til 15:00 alla virka daga




English

