Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Innheimta ofgreiddra atvinnuleysisbóta

Forsíða:

Atvinnuleysisbætur - Greiðslur atvinnuleysisbóta - Innheimta ofgreiddra atvinnuleysisbóta

Skuld vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta getur t.d. myndast vegna:

  • tekna sem umsækjandi fær samhliða atvinnuleysisbótum sbr. vegna vinnu, frá lífeyrissjóðum, Tryggingastofnun o.s.frv.,
  • tímabila þar sem umsækjandi uppfyllti ekki skilyrði um atvinnuleysisbætur sbr. ótilkynntrar vinnu, dvalar erlendis, afplánun refsingar o.s.frv.,
  • ósamrýmanlegra greiðslna samhliða atvinnuleysisbótum sbr. sjúkra- og slysadagpeninga vegna óvinnufærni að fullu, endurhæfingarlífeyris, fæðingarorlofs, greiðslna til foreldra langveikra og alvarlega fatlaðra barna, greiðslna vegna orlofs og starfsloka.

 

Ofgreiddar atvinnuleysisbætur eru innheimtar samkvæmt eftirfarandi:

Umsækjandi fær áfram greiddar atvinnuleysisbætur

  • Umsækjanda er tilkynnt ákvörðun Vinnumálastofnunar og upphæð ofgreiddra atvinnuleysisbóta.
  • Heimilt er að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum sama einstaklings en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur 25% af síðarnefndu atvinnuleysisbótunum í hverjum mánuði.
  • Afskrái umsækjandi sig af atvinnuleysisskrá eru eftirstöðvar skuldar vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta innheimtar skv. neðangreindu.

Umsækjandi fær ekki greiddar atvinnuleysisbætur

  • Umsækjanda er tilkynnt ákvörðun Vinnumálastofnununar og upphæð ofgreiddra atvinnuleysisbóta með eða án 15% álags.
  • Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
  • Verði umsækjandi ekki við greiðsluáskorun Vinnumálastofnunar er málið sent til Innheimtumiðstöðvar Sýslumannsins á Blönduósi til frekari innheimtu.

 

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar um endurkröfu ofgreiddra atvinnuleysisbóta eru aðfararhæfar.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu