Skattkort
Skattkort / Persónuafsláttur
Atvinnuleysisbætur falla alltaf undir skattþrep 1.
Persónuafsláttur á árinu 2012 er 46.532 kr. á mánuði.
Persónuafsláttur einstaklings er að jafnaði nýttur frá 1. - 31. hvers mánaðar.
Skila inn skattkorti til Vinnumálastofnunar
Skattkortum er skilað inn með umsókninni á Þjónustuskrifstofurnar eða send beint til Greiðslustofu. Þau eru vistuð á Greiðslustofu til að tryggja örugga og skilvirka afgreiðslu.
Fá sent skattkort frá Vinnumálastofnun
Til að fá skattkort sent til baka er hægt að:
- Fara inn á "Mínar síður" og smella á "Fá skattkort sent". Þar fyllir þú út upplýsingar um hvert eigi að senda skattkortið.
- Hringja í Greiðslustofu í síma 582 4900.
- Senda netpóst á greidslustofa@vmst.is.
- Óska eftir því hjá Þjónustuskrifstofu.
Skattkortið er sent frá Greiðslustofu eins fljótt og auðið er þegar beiðni um afhendingu berst.
Hafa samband
Greiðslustofa
Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1 - 3
545 Skagaströnd
Sími 582 - 4900
Bréfasími 582 - 4920
Opið er alla virka daga frá
klukkan 9:00 til 15:00




English

