Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Upplýsingaskylda

Atvinnuleitandi skal upplýsa Vinnumálastofnun tafarlaust um allar breytingar sem verða á högum og kunna að hafa áhrif á rétt hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur. Ef ekki er tilkynnt um slíkar breytingar getur það leitt til biðtíma eða annarra viðurlaga samkvæmt lögum. Dæmi um slíkar breytingar eru:

  • þátttaka í námi,
  • tilfallandi vinnu,
  • hlutastarf,
  • fullt starf,
  • aðrar tekjur sem umsækjandi fær samhliða atvinnuleysisbótum,
  • veikindi umsækjanda,
  • skerta vinnufærni / óvinnufærni,
  • dvöl erlendis án E303,
  • orlof,
  • breytingu á heimilisfangi, símanúmeri og/eða netfangi.

Ekki er heimilt að dvelja erlendis á sama tíma og umsækjandi þiggur atvinnuleysisbætur nema hafa sótt um E-303 vottorð

  • Ef umsækjandi hyggst fara í leyfi eða frí þá skal láta Vinnumálastofnun vita af því og er þá umsækjandi skráður af bótum á meðan.

Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu