Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Virk atvinnuleit

Að vera í virkri atvinnuleit

Sá telst vera í virkri atvinnuleit sem uppfyllir eftirtalin skilyrði:

  • er fær til flestra almennra starfa,
  • hefur frumkvæði að starfsleit og er reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir,
  • hefur vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara,
  • er reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á landinu,
  • er reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða, eða vaktavinnu,
  • á ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst vera í virkri atvinnuleit nema um minnkað starfshlutfall sé að ræða,
  • hefur vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til bóta ,
  • er reiðubúinn að veita Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur á að fá starf við hæfi,
  • er reiðubúinn til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum.

Tilkynna skal Vinnumálastofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar (sjá Upplýsingaskyldu).


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu