Bótatímabil
Bráðabirgðaákvæði sem gildir til 31.12.2012
Sá sem telst tryggður og hefur í fyrsta skipti fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá og með 1. mars 2008 eða síðar getur átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta í tólf mánuði til viðbótar frá þeim degi er tímabili lauk enda uppfylli hann áfram skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 nema annað leiði af þeim.
Sá sem telst tryggður og hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í fjögur ár getur áunnið sér rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins að nýju að liðnum 24 mánuðum enda hafi hann starfað á vinnumarkaði í a.m.k. sex mánuði eftir að fyrra tímabili lauk og misst starf sitt af gildum ástæðum.
Tímabil sem atvinnuleysisbætur eru greiddar
Umsækjandi getur átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta í samfellt í 3 ár frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta vegna viðurlaga telst hluti tímabilsins. Einnig þegar greiddar eru hlutfallslegar atvinnuleysisbætur.
Fari umsækjandi til vinnu eftir að hafa verið á atvinnuleysisbótum telst sá tími sem hann er í starfi ekki sem hluti bótatímabilsins. Einnig telst sá tími sem atvinnuleysisbætur geymast ekki hluti tímabilsins.
Fari atvinnuleitandi í vinnumarkaðsúrræði sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir nr. 55/2006 telst sá tími sem hann er í vinnumarkaðsúrræði sem hluti af bótatímabilinu.
Bótatímabilið heldur áfram að líða þegar umsækjandi sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Nýtt bótatímabil eftir að fyrra tímabili lýkur
Sá sem hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í 3 ár getur áunnið sér rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins að nýju að liðnum 24 mánuðum enda hafi hann starfað á vinnumarkaði í a.m.k. sex mánuði eftir að fyrra tímabili lauk og misst starf sitt af gildum ástæðum. Á þá umsækjandir rétt til að hefja nýtt þriggja ára bótatímabil uppfylli hann önnur skilyrði til atvinnuleysisbóta.
Nýtt bótatímabil hefst áður en fyrra tímabil líkur að fullu
Nýtt tímabil hefst þegar umsækjandi sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur uppfylli hann önnur skilyrði til atvinnuleysisbóta.




English

