Ekki bótaréttur
Þeir sem ekki eiga rétt á bótum
- Þeir sem fá greiðslur vegna óteknis orlofs við starfslok - ráðstafa þarf óteknu orlofi. Orlofi frá eldri orlofstímabilum þarf að ljúka áður en atvinnuleysisbætur eru greiddar. Sé orlofi ekki ráðstafað er það skráð frá dagsetningu umsóknar.
- Þeir sem fá greiðslur vegna starfsloka - Hægt er að sækja um atvinnuleysisbætur að loknu því tímabili sem að greiðsla vegna starfsloka á við.
- Námsmenn sem eru í námi sem ekki er hluti af vinnumarkaðsaðgerðum.
- Námsmenn á milli anna og/eða skólastiga.
- Þeir sem njóta slysa- eða sjúkradagpeninga vegna óvinnufærni að fullu.
- Þeir sem fá endurhæfingarlífeyri.
- Þeir sem njóta greiðslna í fæðingarorlofi.
- Þeir sem fá greiðslur vegna langveikra eða alvarlega fatlaðra barna.
- Þeir sem leggja niður störf í verkfalli eða verkbanni vinnuveitanda.
- Þeir sem eru sviptir frelsi sínu með dómi eða úrskurði, eða taka út refsingu í samfélagsþjónustu.
- Þeir sem starfa sem verktakar - umsækjandi verður að afskrá sig á meðan verkefni/vinnu stendur.




English

