Geymdur bótaréttur
Sá sem telst tryggður og hverfur af vinnumarkaði getur geymt þegar áunna atvinnuleysistryggingu í allt að 24 mánuði frá þeim degi er hann sannanlega hætti störfum.
Sá tími sem hinn tryggði starfar á innlendum vinnumarkaði á tímabilinu telst til ávinnslutímabils eftir því sem við á.
- Við útreikninga á ávinnslutímabili þegar kemur til geymdrar atvinnuleysistryggingar skal líta til síðustu 12 mánuða sem hinn tryggði hefur starfað á innlendum vinnumarkaði á síðustu 36 mánuðum frá móttöku umsóknar.
- Sæki hinn tryggði ekki um atvinnuleysisbætur innan 24 mánaða frá þeim degi er hann sannanlega hvarf af vinnumarkaði fellur réttur hans til að geyma atvinnuleysistrygginguna niður.
- Þetta á ekki við um þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur í öðrum ríkjum á sama tímabili.




English

