Afplánun refsingar
Forsíđa:
Atvinnuleysisbćtur - Réttur til atvinnuleysisbóta - Geymdur bótaréttur - Afplánun refsingarSá sem telst tryggður og hverfur af vinnumarkaði til að taka út refsingu sína samkvæmt dómi getur geymt þegar áunna atvinnuleysistryggingu þangað til hann hefur lokið afplánun refsingar.
- Við útreikninga á ávinnslutímabili þegar kemur til geymdrar atvinnuleysistryggingar skal líta til síðustu 12 mánaða frá þeim tíma er hinn tryggði sannanlega hættir störfum og tímabil afplánunar hófst.
- Ef ekki er sótt um atvinnuleysisbætur innan sex mánaða frá þeim degi er afplánun refsingar lauk fellur réttur til að geyma atvinnuleysistrygginguna niður.
- Vottorð frá fangelsismálayfirvöldum skal fylgja umsókn um atvinnuleysisbætur þar sem meðal annars skal koma fram það tímabil sem afplánun refsingar stóð yfir.
- Þetta á ekki við um þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur í öðrum ríkjum á sama tímabili.




English

