Beint á leiđarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiđarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíđu

Nám

Sá sem telst tryggður og hverfur af vinnumarkaði til að stunda nám getur geymt þegar áunna atvinnuleysistryggingu í allt að 72 mánuði frá þeim degi er hann sannanlega hætti störfum enda hafi hann sannanlega lokið náminu.

  • Sá tími sem umsækjandi starfar á innlendum vinnumarkaði á tímabilinu telst til ávinnslutímabils.
  • Við útreikninga á ávinnslutímabili þegar kemur til geymdrar atvinnuleysistryggingar skal líta til síðustu tólf mánaða sem umsækjandi hefur starfað á innlendum vinnumarkaði á síðustu 84 mánuðum frá móttöku umsóknar, uppfylli hann skilyrði laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar að öðru leyti.
  • Sæki hinn tryggði ekki um atvinnuleysisbætur innan 72 mánaða frá þeim degi er hann sannanlega hætti störfum eða hefur ekki lokið námi innan þess tíma fellur réttur hans til að geyma atvinnuleysistrygginguna niður.
  • Nám umsækjanda þarf að hafa byrjað eftir 1. júlí 2006, þegar lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar tóku gildi.
  • Þetta á ekki við um þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur í öðrum ríkjum á sama tímabili.


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborđ

til baka Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu