Óvinnufærni vegna sjúkdóms eða slyss
Forsíða:
Atvinnuleysisbætur - Réttur til atvinnuleysisbóta - Geymdur bótaréttur - Óvinnufærni vegna sjúkdóms eða slyssSá sem telst tryggður og hverfur af vinnumarkaði verði hann óvinnufær vegna sjúkdóms eðs slyss getur geymt þegar áunna atvinnuleysistryggingu þann tíma sem hann er óvinnufær.
- Við útreikninga á ávinnslutímabili þegar kemur til geymdrar atvinnuleysistryggingar skal líta til síðustu 12 mánaða frá þeim tíma er hinn tryggði sannanlega hætti störfum og tímabil hófst.
- Ef ekki er sótt um atvinnuleysisbætur innan sex mánaða frá þeim degi er aðili verður vinnufær á ný fellur réttur hans til að geyma atvinnuleysistrygginguna niður.
- Vottorð sérfræðilæknis er annaðist hinn tryggða skal fylgja umsókn um atvinnuleysisbætur þar sem meðal annars skal koma fram hvenær hann varð óvinnufær og hvenær hann varð vinnufær á ný.
- Þetta á ekki við um þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur í öðrum ríkjum á sama tímabili.




English

