Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Virkri atvinnuleit hætt tímabundið

Sá sem hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur í skemmri tíma en 24 mánuði en hættir tímabundið virkri atvinnuleit getur geymt þegar áunna atvinnuleysistryggingu í allt að 24 mánuði frá þeim degi er hann sótti um atvinnuleysisbætur enda hafi hann ekki áður nýtt sér heimild til geymslu bótaréttar.

Sá sem hættir virkri atvinnuleit til að stunda nám getur geymt þegar áunna atvinnuleysistryggingu í allt að 36 mánuði frá þeim degi er hann sannanlega hætti virkri atvinnuleit enda hafi hann sannanlega lokið náminu. Þegar sótt er aftur um atvinnuleysisbætur skal miða við atvinnuleysistryggingar hins tryggða eins og þær voru áður en hann hóf námið nema annað leiði af lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Þetta á ekki við um þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur í öðrum ríkjum á sama tímabili.



Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu