Umsóknar- og skráningarferli
Hvenær á að sækja um atvinnu og atvinnuleysisbætur?
Umsækjandi um atvinnuleysisbætur skráir sig fyrsta daginn sem hann er sannanlega atvinnulaus að fullu eða hluta og atvinnuleit hefst. Viðkomandi fær greiddar atvinnuleysisbætur frá og með þeim degi sem hann skráir sig fyrst.
Hvar á að sækja um atvinnuleysisbætur?
Umsókn um atvinnu og atvinnuleysisbóta fer fram rafrænt á vef Vinnumálastofnunar. Staðfesta þarf umsóknina með undirskrift á viðkomandi þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar innan 2 vikna frá því að skráningu umsóknar.
Hvernig á að sækja um atvinnuleysisbætur?
Nýskráning
Farið er í Nýskráning á heimasíðu Vinnumálastofnunar og stofnaður notandi. Þegar notandi hefur verið stofnaður þá er sendur staðfestingarpóstur á skráð netfang. Til að virkja umsóknina þarf að smella á tengilinn sem fylgir tölvupóstinum. Að því loknu er fylgt leiðbeiningum í umsókn.
Endurskráning
Farið er í Mínar síður innskráning þar sem skráð er notendanafn og lykilorð. Að því loknu er fylgt leiðbeiningum í umsókn.
Staðfesting umsóknar
Staðfesta skal rafræna umsókn innan 2 vikna á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Umsókn tekur gildi frá skráningardegi.
Hafi umsókn ekki verið staðfest innan 2 vikna verður hún ógild og henni eytt. Komi umsækjandi til að staðfesta umsókn sína eftir að umræddar 2 vikur eru liðnar tekur umsókn gildi frá mætingardegi.
Fylgigögn
Í umsókninni birtast upplýsingar um hvaða gögn þurfa að fylgja umsókn um atvinnuleysisbætur. Þessar upplýsingar eru jafnframt teknar saman í lok umsóknarferils. Það getur tafið afgreiðslu umsóknar ef fylgigögn liggja ekki fyrir við staðfestingu umsóknar.
Sjá nánar hér.
Afgreiðsla umsókna
Þegar umsókn hefur verið staðfest með undirritun á viðkomandi þjónustuskrifstofu er umsóknin send til Greiðslustofu til afgreiðslu. Umsóknir og gögn eru afgreidd í þeirri röð sem þau berast Greiðslustofu.
Sjá nánar hér.




English

