Beint á leiðarkerfi vefsins - yfirflokkar
Beint á leiðarkerfi vefsins - undirflokkar
Fara á forsíðu

Afgreiðsla umsókna

Þegar umsókn hefur verið staðfest með undirritun á viðkomandi þjónustuskrifstofu og umbeðin gögn hafa borist er umsóknin send til Greiðslustofu til afgreiðslu. Umsóknir og gögn eru afgreidd í þeirri röð sem þau berast Greiðslustofu.
Afgreiðsla umsóknar getur tekið allt að 6 vikum.

Farið er yfir umsóknir og meðfylgjandi gögn og bótaréttur metinn. Ef ekki er óskað frekari upplýsinga eða gagna frá umsækjanda er umsókn afgreidd og hefst þá greiðsla atvinnuleysisbóta næstu mánaðarmót á eftir sé umsókn samþykkt.

Afgreiðslu frestað
Sé þörf á frekari upplýsingum og/eða gögnum er afgreiðslu umsóknar frestað  og umsækjanda sent bréf þess efnis. 
Afgreiðslu umsóknar getur verið frestað meðal annars ef:

  • Gögn eða upplýsingar vantar, til dæmis vottorð vinnuveitanda, starfshæfnivottorð eða staðfestingu um námslok/námstímabil.
  • Umsækjanda er boðið að koma með skýringar og andmæli við væntanlegri ákvörðun Vinnumálastofnunar t.d. ef um viðurlög eða biðtíma er að ræða.

Berist umbeðin gögn og/eða skýringar og andmæli ekki innan tilskilins frests er umsókn afgreidd á grundvelli fyrirliggjandi gagna.

Upplýsingar um stöðu umsóknar í afgreiðsluferli er hægt að nálgast á Mínum síðum undir Stöðu umsóknar.

Greiðslustofa Vinnumálastofnunar annast greiðslu atvinnuleysisbóta.


Hafa samband

Greiðslustofa Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1-3
545 Skagaströnd                                                                                                                                     

Greiðslustofa er opin frá
9:00 til 15:00 alla virka daga

Sími: 582 4900
Bréfasími 582 4920

Netfang: greidslustofa@vmst.is


Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra

Stjórnborð

til baka Senda þessa síðu Prenta þessa síðu