Atvinnuleysistryggingasjóður
E-301 vottorð
Ef einstaklingur ætlar í atvinnuleit í öðru EES-landi er hægt að fá vottað að hann hafi verið atvinnuleysistryggður á Íslandi. Þetta er gert með því að sækja um E-301 vottorð með því að fylla út eyðublaðið E-301/N-301 og skila því til Vinnumálastofnunar/ Atvinnuleysistryggingasjóðs ásamt vottorðum frá þeim vinnuveitendum sem þú hefur verið hjá s.l. 3 ár Þetta er hægt hvort sem einstaklingur á rétt á atvinnuleysisbótum hér á landi eða ekki.
Ef starfað hefur verið í EES-landi er einnig ágætt að verða sér út um E-301 vottorð í því EES-landi sem starfað hefur verið fyrir heimkomu.
E-303 vottorð
Ef atvinnulaus einstaklingur ætlar í atvinnuleit til EES-lands getur hann að uppfylltum skilyrðum fengið heimild til að halda atvinnuleysisbótum sínum í allt að 3 mánuði meðan á atvinnuleitinni stendur og fengið þær greiddar í því landi sem hann ætlar að leita sér að vinnu.
Umsóknareyðublað um E-303. fæst hjá Vinnumálastofnun/ Atvinnuleysistryggingasjóði, Hafnarhúsi v/Tryggvagötu, 150 Reykjavík, hér á vefnum eða hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar.
Leita
Samskipti
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1-3
545 Skagaströnd
Sími 582 4900
Fax 582 4920
greidslustofa@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 9:00 - 15:00
Mynd







