Beint á leiðarkerfi vefsins

Atvinnuleysistryggingasjóður

15.10.2006

Ársfundur Vinnumálastofnunar 2006

Ársfundur Vinnumálastofnunar var haldinn föstudaginn 13. október síðast liðinn. Fundurinn hófst á ávarpi Magnúsar Stefánssonar félagsmálaráðherra þar sem hann fjallaði m.a. um hvernig íslenskt samfélag væri undir það búið að taka við þeim mikla fjölda útlendinga sem hingað hafa flust á síðustu misserum. Nefndi hann sérstaklega að koma þyrfti íslenskukennslu fyrir útlendinga í betra horf. Einnig rakti hann þær víðtæku breytingar sem orðið hafa á þeim sviðum sem að starfsemi Vinnumálastofnun snúa á undanförnum misserum, hvað varðar lagaumhverfi, ný verkefni og breytingar á vinnumarkaði.

11.10.2006

Atvinnuleysi 1% í september

Í septembermánuði síðastliðnum voru skráðir 34.140 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 1.628 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1% atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði skv. áætlun Efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í september 2006 er 161.383.


Staðfesting á atvinnuleitlækniskostnaðurDagpeningarUpplýsingar um atvinnuleysistryggingarSpurt og svaraðÞýðingar á pólskuAtvinnumál kvenna

Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Atvinnuleysistryggingar