Beint á leiđarkerfi vefsins

Atvinnuleysistryggingasjóđur

22.12.2008

Greiđslustofa verđur lokuđ á Ađfangadag

Tilkynning frá Greiðslustofu

Greiðslustofa verður lokuð á aðfangadag.
Atvinnuleysistryggingar verða greiddar út 31. desember og svo aftur 5. janúar þar sem bankar eru lokaðir 2. janúar. Allir sem eru nú þegar í greiðslukerfi atvinnuleysistrygginga fá greitt 31. desember. Þeir umsækjendur sem ekki eru orðnir virkir í greiðslukerfinu fá hins vegar greitt 5. janúar.

 

 

10.12.2008

Atvinnuleysi 3,3% í nóvember

Skráð atvinnuleysi í nóvember 2008 var 3,3% eða að meðaltali 5.445 manns og eykst atvinnuleysi um 75% að meðaltali frá október eða um 2.339 manns.  Atvinnuleysi hefur ekki jafn mikið frá því í maí árið 2004. Á sama tíma á árinu 2007 var atvinnuleysi 0,8%, eða 1.321 manns. 

3.12.2008

Upplýsingar um nám, námskeiđ og endurmenntun

Á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins hefur verið sett upp vefsvæði þar sem er að finna samantekt ýmissa gagnlegra upplýsinga og tengla um nám, námskeið, fræðslu og endurmenntun af ýmsu tagi og er ætlað að nýtast atvinnulausum nú þegar atvinnuleysi fer vaxandi og fá störf eru í boði.

26.11.2008

Upplýsingar og leiđbeiningar vegna lagabreytinga um hlutabćtur og sjálfstćtt starfandi

Teknar hafa verið saman upplýsingar og leiðbeiningar vegna nýlegra breytinga (lög 131/2008) á lögum 54/2006 um atvinnuleysistryggingar, vegna minnkaðs starfshlutfalls launamanna. 

Verið er að vinna að leiðbeiningareglum vegna bótaréttar sjálfstætt starfandi þegar samdráttur verður í rekstri.

21.11.2008

Atvinnumál kvenna - Styrkjum úthlutađ mánudaginn 24. nóvember

Blaðamannafundur verður haldinn á mánudaginn 24.nóvember í Þjóðmenningarhúsinu þar sem Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, mun afhenda styrki til atvinnumála kvenna.

16.11.2008

Evrópsk starfakynning 21. og 22. nóv.

Vinnumálastofnun og EURES-samevrópska vinnumiðlunin, standa fyrir Evrópskri starfakynningu í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 21. nóvember frá kl. 17:00 til 21:00 og laugardaginn 22. nóvember frá kl. 12:00 til 18:00.

14.11.2008

Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar og Ábyrgđasjóđ launa

Alþingi hefur samþykkt lög um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar annars vegar og lögum um Ábyrgðasjóð launa hins vegar. Breytingarnar á atvinnuleysistryggingalöggjöfinni snúa bæði að launþegum og sjálfstætt starfandi og gilda til 1. maí 2009.

12.11.2008

Atvinnuleysiđ 1,9% í október

Skráð atvinnuleysi í október 2008 var 1,9% eða að meðaltali 3.106 manns og eykst atvinnuleysi um 40% frá september eða um 877 manns.  Á sama tíma á árinu 2007 var atvinnuleysi 0,8%, eða 1.315 manns. 

30.10.2008

Rafrćn umsókn um atvinnuleysisbćtur

Vinnumálastofnun mun á morgun, föstudaginn 31. október, opna fyrir rafræna umsókn um atvinnuleysisbætur. Unnið hefur verið að undirbúningi þess síðustu vikur og verður skráningarformið sett upp á vef stofnunarinnar til prufu á morgun. 

30.10.2008

Ársfundur Vinnumálastofnunar

Ársfundur Vinnumálastofnunar verður haldinn á morgun, föstudaginn 31. október, á Hótel Hilton, 2. hæð og hefst kl. 13.

29.10.2008

Skýringar međ töflu á forsíđu um fjölda atvinnulausra

Margir hafa undrast af hverju atvinnulausum hefur fækkað síðustu daga skv. tölum í töflu á forsíðu á vef Vinnumálastofnunar. Ástæðan er fyrst og fremst tæknilegs eðlis og verður reynt að skýra það hér að neðan.

23.10.2008

Umsókn um atvinnuleysisbćtur í uppsagnarfresti - Gjaldţrot

Vinnumálastofnun hefur breytt verklagi sínu við afgreiðslu umsókna um atvinnuleysisbætur í uppsagnarfresti vegna gjaldþrots fyrirtækis/félags.

10.10.2008

Atvinnuleysi 1,3% í september

Atvinnuleysið í septembermánuði var 1,3% og jókst úr 1,2% í ágúst. Að meðaltali voru 2.229 manns atvinnulausir og er það aðeins um 4% aukning frá í ágúst. Atvinnuleysi er nú mun meira en á sama tíma á árinu 2007, þegar það var 0,8%. Vegna samdráttar í efnahagslífinu er líklegt að atvinnuleysið í október muni aukast verulega og verða á bilinu 1,5 til 1,9% en mjög erfitt er að sjá fyrir þróun efnahags- og atvinnulífs og þar með hvernig atvinnuleysi muni þróast næstu vikur og mánuði.

9.10.2008

Samrćmt ţjónustu- og upplýsinganet

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur sett á fót nýtt samræmt þjónustu- og upplýsinganet vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði. Um er að ræða nýtt vefsvæði, grænt símanúmer 800 1190, fyrirspurnalínu og netspjall.

29.9.2008

Um 250 umsóknir um styrki

8.9.2008

Styrkir til atvinnumála kvenna

Nú hefur Vinnumálastofnun/ Félagsmálaráðuneytið auglýst styrki til Atvinnumála kvenna lausa til umsóknar og er umsóknarfrestur til 28.september næstkomandi.  Til umráða nú eru 50 milljónir sem að verður úthlutað til kvenna sem hafa góðar viðskiptahugmyndir.

29.8.2008

Tilkynning um samrćmdan opnunartíma

Afgreiðslutími allra þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar um allt land verður frá og með 1. september 2008 frá kl. 9:00 til 15:00.

13.8.2008

Atvinnuleysi 1,1% í júlí

Skráð atvinnuleysi í júlí 2008 var 1,1% og voru að meðaltali 1.968 manns á atvinnuleysisskrá. Hlutfall atvinnuleysis er því óbreytt frá júní og er atvinnuleysi enn með minnsta móti. Hins vegar eru að jafnaði 126 fleiri atvinnulausir en í júní sem gerir um 7% aukningu. Árstíðabundin aukning vinnuafls hefur hins vegar áhrif á hlutfall atvinnuleysis á þriðja ársfjórðungi.  Atvinnuleysi er nú nokkru meira en á sama tíma fyrir ári þegar það var 0,9%.

11.7.2008

Atvinnuleysi 1,1% í júní 2008

Skráð atvinnuleysi í júní var 1,1% og eykst úr 1% í maí sl. Atvinnuleysið var 1% í júní í fyrra.

Að meðaltali voru 1.842 atvinnulausir í júní og fjölgar atvinnulausum um 103 eða um 6% frá maí.

 

20.6.2008

Atvinnumál kvenna - aukin ţjónusta

 Þann 1. júní tók til starfa hjá Vinnumálastofnun Ásdís Guðmundsdóttir, félagsfræðingur og MS í stjórnun sem ráðgjafi og sérfræðingur í atvinnumálum kvenna. Verkefni hennar verður að sjá um Styrki til atvinnumála kvenna og þjónustu við þær konur sem hafa áhuga á að hasla sér völl sem sjálfstæðir atvinnurekendur.

20.6.2008

Hópuppsagnir

Settar hafa verið inn nokkuð ítarlegar upplýsingar um hópuppsagnir undir samnefndan lið í veftrénu hér vinstra megin á síðunni. Er þar um að ræða leiðbeiningar til atvinnurekenda um hvernig þeir skuli haga málum þegar um hópuppsagnir er að ræða, eyðublað með tilkynningu til Vinnumálastofnunar um hópuppsögn, samantektar um þær tilkynningar sem borist hafa Vinnumálastofnun um hópuppsagnir á árinu 2008 og fleiri tengdar upplýsingar.

11.6.2008

Atvinnuleysiđ 1% í maí

Skráð atvinnuleysi í maí 2008 var 1% og voru að jafnaði 1.739 manns á atvinnuleysisskrá, sem eru 22 fleiri en í apríl sl. Atvinnuleysishlutfallið er óbreytt frá því í síðasta mánuði og hefur raunar verið 1% frá áramótum. Í maímánuði í fyrra var atvinnuleysið 1,1%.

30.5.2008

Vinnumálastofnun á Suđurlandi er lokuđ í dag 30.05, vegna jarđskjálftanna.

Vinnumálastofnun á Suðurlandi er lokuð í dag 30.05, vegna jarðskjálftanna.

13.5.2008

Atvinnuleysiđ 1% í apríl

Skráð atvinnuleysi í apríl 2008 var 1% eða að meðaltali 1.717 manns, sem eru 43 fleiri en í mars sl. eða rúmlega 2% aukning.  Atvinnuleysi er um 8% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,1%. Sjá nánar í skýrslu um atvinnuástandið í apríl.

30.4.2008

Stađa og horfur á vinnumarkađi

Vinnumálastofnun hefur tekið saman skýrslu um stöðu og horfur á vinnumarkaði á vormánuðum 2008. Í skýrslunni er litið á þróun atvinnuleysis og eftirspurnar eftir vinnuafli síðustu misseri ásamt spá um líklega þróun atvinnuleysis næstu 2 ár.

11.4.2008

Atvinnuleysi 1% í mars

Skráð atvinnuleysi í mars 2008 var 1% og voru að meðaltali 1.674 manns á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, sem eru 43 fleiri en í febrúar sl. eða 2,6% aukning. Atvinnuleysi er um 13% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,3%. 

1.4.2008

Atvinnuleysisbćtur hćkka frá 1. febrúar 2008

Atvinnuleysisbætur hækka frá og með 1. febrúar 2008 og verður mismunur hækkunarinnar greiddur atvinnulausum eigi síðar en 15. apríl.

14.3.2008

Afmćlisganga á Skagaströnd

12.3.2008

Atvinnuleysi 1% í febrúar 2008

Skráð atvinnuleysi í febrúar 2008 var 1% eða að meðaltali 1.631 manns, sem eru 86 fleiri en í janúar sl. eða um 5% aukning.  Atvinnuleysi er um 20% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,3%. Atvinnuleysi eykst á höfuðborgarsvæðinu um 6% og er 0,7% eða sama og í janúar. Á landsbyggðinni eykst atvinnuleysi um 5% og er 1,6% en var 1,5% í janúar.  

20.2.2008

Nćsta útborgun 3. mars

20.2.2008

Símatíma breytt

13.2.2008

Upplýsingar á síđu Greiđslustofu

12.2.2008

Félags- og tryggingarmálaráđherra styrkir atvinnusköpun kvenna

Félags- og tryggingarmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir hefur úthlutað styrkjum til atvinnumála kvenna að upphæð kr. 15.790.000,- Styrkjunum er ætlað að styðja við bakið á konum sem hafa áhuga á að hasla sér völl sem sjálfstæðir atvinnurekendur og eru með áhugaverða viðskiptahugmynd. Að þessu sinni var um að ræða aukaúthlutun styrkja til atvinnumála kvenna fyrir árið 2007 vegna mótvægisaðgerða ríkisstjórnarinnar og því mestu úthlutað til kvenna á landsbyggðinni. 

12.2.2008

Atvinnuleysi 1% í janúar 2008

Skráð atvinnuleysi í janúar 2008 var 1% eða að meðaltali 1.545 manns, sem eru 188 fleiri en í desember sl. eða um 14% aukning.  Atvinnuleysi er um 22% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,3%. Atvinnuleysi eykst á höfuðborgarsvæðinu um 12% og er 0,7% en 0,6% í desember.  Á landsbyggðinni eykst atvinnuleysi meira eða um 16% og er 1,5% en 1,2% í desember.  

11.1.2008

Atvinnuleysi 0,8% í desember

Skráð atvinnuleysi í desember 2007 var 0,8% eða að meðaltali 1.357 manns, sem eru 36 fleiri en í nóvember sl. eða 2,6% aukning.  Atvinnuleysi er um 28% minna en á sama tíma fyrir ári þegar það var 1,2%.

Stađfesting á atvinnuleitlćkniskostnađurDagpeningarUpplýsingar um atvinnuleysistryggingarSpurt og svarađŢýđingar á pólskuAtvinnumál kvenna

Slóđ:

Fréttir

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Atvinnuleysistryggingar