Beint á leiðarkerfi vefsins

Atvinnuleysistryggingasjóður

8.2.2010

Ný námskeið hjá Fræðslumiðstöð

Nú eru að hefjast ný námskeið hjá Fræðslumiðstöð Vestfarða. Áhugasamir atvinnuleitendur kynni sér námsstyrki stéttarfélaga og námsstyrki Vinnumálastofnunar sem styrkir námskeið sem geta styrkt stöðu einstaklinga á vinnumarkaði. ATH sækja þarf um námsskeiðsstyrk tl Vinnumálastofnunar áður en námskeið hefst og er umsóknareyðublað hér: http://www.vinnumalastofnun.is/svmvf/vinnumalastofnun-vestfjordum/eydublod/

Námskeið sem eru að hefjast!

Pólska I. Hefst 15. febrúar. Kennt mándaga kl. 18:00-20:00. Verð 26.500 kr. (24 kennslust.).

Námskeið fyrir þá sem hafa engan grunn í pólsku. Tilvalið fyrir þá sem eiga samskipti við pólskumælandi fólk svo sem vinnuveitendur, starfsfólk opinberra stofnana og þjónustufyrirtækja og aðra áhugasama.

 

Færni – tölvunámskeið fyrir lesblinda. Kennt mánudag til miðvikudags 15. – 17. febrúar kl. 18:00-21:00. Verð 18.300 kr. (13 kennslust.).

Námskeið ætlað lesblindum og öðrum sem vilja nýta sér tækni við lestur og skrift. Kennari frá Félagi lesblindra á Íslandi.

 

Grasalækningar og íslenskar lækningajurtir – fjarnámskeið frá EHÍ. Kennt miðvikudaginn 17. febrúar kl. 20:15 – 22:15. Verð 5.900 kr. (3 kennslust.).

Námskeið fyrir alla þá sem hafa áhuga á íslenskum jurtum og notkun þeirra. Kennt í gegnum fjarfundabúnað.

 

Ítalska I. Hefst 17. febrúar. Kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 17:30-19:00. Verð 26.500 kr. (24 kennslust.).

Námskeið ætlað byrjendum í ítölsku.

 

Íslenska fyrir útlendinga. Hefst 18. febrúar. Kennt þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:00-20:00. Verð 29.000 (60 kennslust).

 

Enska fyrir lengra komna – talmál. Hefst 24. febrúar. Kennt miðvikudaga kl. 19:30-21:30. Verð 26.500 kr. (24 kennslust.).

Námskeið fyrir þá sem hafa grunn í ensku en vilja ná betri tökum á málinu. Kennsla fer fram á ensku.

 

Excel.Hefst 25. febrúar. Kennt fimmtudaga kl. 20:00-22:00. Verð 18.600 kr. (15 kennslust.).

Námskeið fyrir þá sem vilja ná betri tökum á excel töflureikninum.

 

Samtals- og viðtalstækni. Kennt laugardaginn 27. febrúar kl. 10:30-16:00. Verð 18.000 kr. (7 kennslust.).

Námskeið ætlað sjúkraliðum en öllum opið.

 

Rétt er að vekja athygli á því að í mörgum tilfellum styrkja stéttarfélög félagsmenn sína til að sækja námskeið.

 

Allar frekari upplýsingar og skráning á www.frmst.is og í síma: 456-5025


Staðfesting á atvinnuleitlækniskostnaðurDagpeningarUpplýsingar um atvinnuleysistryggingarSpurt og svaraðÞýðingar á pólskuAtvinnumál kvenna

Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Atvinnuleysistryggingar