Atvinnuleysistryggingasjóður
9.3.2010
Starfsnám stuðningsfulltrúa á Ísafirði - hefst 15. mars
Vinnumálastofnun vill vekja athygli á að nú er að fara af stað starfsnám stuðningsfulltrúa sem hægt er að stunda á Ísafirði (í húsnæði Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða) en námið er fjarkennt frá Reykjavík. Námið hefst 15. mars en lýkur 20 maí n.k. með útskrift. Kennt er frá 12.30 - 16 alla virka daga. Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að afla sér starfsréttinda stuðningsfulltrúa en þeir starfa við m.a. með fötluðum einstaklingum í skólum, leikskólum og víðar. Meðfylgjandi eru upplýsingar um námið þ.e. lýsing og stundaskrá á Ísafirði allt tímabilið. Sækja þarf um námið hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt og er þátttökuumsókn á þessari slóð:
Styrkir til námsins:
Námið kostar kr. 80.000.- (Fyrir atvinnulausa kr. 60.000) . Hægt er að sækja um styrk hjá Vinnumálastofnun fyrir 50% upphæðar (sækja þarf um styrki Vinnumálastofnunar amk 5 dögum áður en nám hefst og eru umsóknaeyðublöð hér: http://www.vinnumalastofnun.is/files/Umsókn%20um%20námsstyrk%20-%20Word_1265845335.doc). Þeir sem hafa áhuga hafið samband við við Vinnumálastofnun (Guðrúnu Stellu).
Þeir sem greiða í stéttarfélag af atvinnuleysisbótum geta einnig sótt um styrk hjá sínu stéttarfélagi. Atvinnuleitendur sem greiða í stéttarfélag sem er aðildarfélag starfsmenntar fá námið frítt. Eftirtalin félög eiga aðild að Starfsmennt: Aðildarfélög Starfsmenntar
Aðildarfélög Fræðslusetursins Starfsmenntar eru víðsvegar um landið.Sjálfseignastofnanir eiga einnig aðild að setrinu og nýlega var gerður samningur við Mannauðssjóð KJALAR um að greiða leið bæjarstarfsmanna og stofnana að símenntun. Þeir félagsmenn sem aðildin tekur til eru starfsmenn ríkisins innan eftirtalinna stéttarfélaga:
Einstök félög:
SFR - stéttarfélag í almannaþjónustu
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
Kjölur - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
Félag starfsmanna stjórnarráðsins
Starfsmannafélag Garðabæjar
Starfsmannafélag Kópavogs
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins
Eftirtalin félög er tengjast Samfloti bæjarstarfsmannafélaga:
Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellssýslu
Starfsmannafélag Húsavíkur
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar
Starfsmannafélag Fjallabyggðar
Starfsmannafélag Skagafjarðar
Fyrir hönd ríkisins:
Fjármálaráðuneytið
Leita
Samskipti
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1-3
545 Skagaströnd
Sími 582 4900
Fax 582 4920
greidslustofa@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 9:00 - 15:00
Mynd














