Beint á leiðarkerfi vefsins

Atvinnuleysistryggingasjóður

9.3.2010

Leiðing til velgengni - úr skuldum í jafnvægi

Atvinnuleitendum á norðanverðum Vestfjörðum býðst núna að sækja námskeiðið:

Leiðin til velgengni - Úr skuldum í jafnvægi (ATH takmörkuð námskeiðspláss í boði en námskeiðið er á vegum Starfsendurhæfingar Vestfjarða ).

Hugmyndafræðin  „ Leiðin til velgengni“ skiptir fjármálalegri þroskagöngu einstaklings upp í sjö þrep. Á hverju þrepi tileinkar einstaklingurinn sér eitthvað sem er nauðsynlegt til að öðlast velgengni í fjármálum. Þegar hann er búin að tileinka sér lærdóm fyrsta þreps er hafist handa við verkefnin á næsta þrepi.

Áður en einstaklingur uppgötvar hver lærdómur hvers þreps er hugsar hann og hegðar sér á ákveðin hátt. Hann trúir að hann sé að gera rétt þótt reyndin sé að fjármálavandi myndast. Lærdómur hvers þreps er orðin að þroska þegar einstaklingur er búin að tileinka sér nýja hegðun. Hegðun þar sem hann framkvæmir jafnharðan og áreynslulaust það sem lært var á þrepinu. Þessi hegðun tryggir að fjarmálavandinn sem myndaðist hverfur. Sjá nánar: http://ltv.is/

Námskeiðið er frá 07.04.2010 - 22.04.2010

Staður:
Fræðslumiðstöð Vestfjarðar (Starfsendurhæfing Vestfjarða sér um námskeiðið)
Námskeið:
Úr skuldum í jafnvægi

Dagar

Dagur 1 Miðvikudagur 7. apríl.

Dagur 2 Fimmtudagur 8. apríl. 

Dagur 3 Fimmtudagur 15 apríl.

Dagur 4 Þriðjudagur 20 apríl

Dagur 5  Miðvikudagur 21 apríl

ATH Sækja þarf um námskeiðspláss til Vinnumálastofnunar á Vestfjörðum fyrir 26. mars 2010 en takmörkuð námskeiðspláss eru á námskeiðinu.


Staðfesting á atvinnuleitlækniskostnaðurDagpeningarUpplýsingar um atvinnuleysistryggingarSpurt og svaraðÞýðingar á pólskuAtvinnumál kvenna

Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Atvinnuleysistryggingar