Atvinnuleysistryggingasjóður
1.11.2. Tekjutenging
Sá sem telst tryggður öðlast rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta í allt að 3 mánuði. Grunnatvinnuleysisbætur eru greiddar fyrst í samtals 10 virka daga og svo tekur tekjutenging við í 65 virka daga.
Hámarksfjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta í hverjum mánuði miðast við tryggingahlutfall hins tryggða en nema þó aldrei hærri fjárhæð en 242.636 á mánuði miðað við óskerta atvinnuleysistryggingu.
Tekjutengdar atvinnuleysisbætur launamanna nema 70% af meðaltali heildarlauna og er miðað við sex mánaða tímabil sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus.
Tekjutengdar atvinnuleysisbætur sjálfstætt starfandi einstaklinga eru 70% af meðaltali heildarlauna og skal miða við tekjuárið á undan því ári sem umsækjandi varð atvinnulaus.
-
Sá sem sætir biðtíma eftir atvinnuleysisbótum á ekki rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum.
-
Umsækjandi á aðeins einu sinni á hverju bótatímabili rétt á tekjutengdum atvinnuleysisbótum og þá í upphafi tímabilsins.
Leita
Samskipti
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1-3
545 Skagaströnd
Sími 582 4900
Fax 582 4920
greidslustofa@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 9:00 - 15:00
Mynd







