Atvinnuleysistryggingasjóður
Lækniskostnaður
Þeir sem hafa verið atvinnulausir samfellt í 6 mánuði og hafa fengið vottorð um það frá Vinnumálastofnun greiða fyrir heilbrigðisþjónustu samkvæmt gjaldskrá lífeyrisþega. Framvísa þarf vottorði Vinnumálastofnunar við komu á heilsugæslu eða hjá lækni.
Þeir sem hafa verið atvinnulausir lengur en 6 mánuði og hafa fengið afsláttarkort frá Sjúkratryggingum Íslands, greiða fyrir heilbrigðisþjónustu samkvæmt gjaldskrá lífeyrisþega til ársloka. Framvísa þarf vottorði Vinnumálastofnunar við komu á heilsugæslu eða hjá lækni.
Gjaldskrá læknisþjónustu og heilsugæslu.
Afsláttarkort Sjúkratrygginga Íslands
Sjúkratryggingum berast upplýsingar um flestar greiðslur frá sjálfstætt starfandi sérfræðingum sem eru með samning við SÍ. Sjúkratryggingum berast ekki upplýsingar frá heimilis- eða heilsugæslulæknum eða sjúkrahúsum, nema Landsspítala. Frá Landsspítala berast nánast öll gögn um göngudeildarþjónustu.
Reikningar þurfa að berast til þjónustumiðstöðvar Sjúkratrygginga Íslands, Laugavegi 114, 150 Reykjavík. Tekið er við reikningum í pósti eða í afgreiðslu, þar sem þeir eru settir í sérstakt umslag.
Nú hefur útgáfu plaskorta verið hætt og er afsláttarkortið á vefnum. Ef þú ferð inn í Réttindagáttina sem er á forsíðu getur þú náð í afsláttarkortið og greiðsluskjöl.
Leita
Samskipti
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1-3
545 Skagaströnd
Sími 582 4900
Fax 582 4920
greidslustofa@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 9:00 - 15:00
Mynd







