Beint á leiðarkerfi vefsins

Atvinnuleysistryggingasjóður

1.4. Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar 

Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar eru um allt land; Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og eystra, Austurlandi og Suðurlandi. Þjónustuskrifstofurnar annast skráningu atvinnulausra, reka vinnumiðlun og bjóða ráðgjöf við atvinnuleit.

Þjónustuskrifstofa

Heimilisfang

Sími/bréfasími

Höfuðborgarsvæðið

Engjateigur 11, 105 Reykjavík

515-4850 / 588-2587

Vesturland

Stillholt 18, 300 Akranes

430-5300 / 430-5301

Vestfirðir

Árnagötu 2-4, 400 Ísafjörður

512-7790 / 534-7791

Norðurland vestra

Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd

455-4200 / 455-4201

Norðurland eystra

Skipagata 14, 600 Akureyri

460-5100 / 462-2100

Austurland

Miðás 1, 700 Egilsstaðir

512-8280 / 471-2287

Suðurland

Austurvegur 56, 801 Selfoss

412-7780 / 571-0790

Suðurnes

Hafnargötu 55, 230 Reykjanesbæ

421-8400 / 421-8405


EES - vinnumiðlun er fyrir þá sem hyggjast leita að starfi eða auglýsa starf á Evrópska efnahagssvæðinu. Hún er staðsett á Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins en á öllum þjónustuskrifstofum starfar EURES-miðlari.
Atvinnuleitandi er bókaður í viðtal strax við fyrstu skráningu og ber að hafa regluleg samskipti við starfsmenn þjónustuskrifstofu skv. skipulagi.

Atvinnuleysistryggðir skulu tilkynna þjónustuskrifstofu um leið og þeir hafa fengið vinnu, vinnufærni skerðist af heilsufarsástæðum eða virkri atvinnuleit er hætt vegna náms, fæðingarorlofs eða af annarri ástæðu.

Á heimasíðu Vinnumálastofnunar, www.vinnumalastofnun.is, á hver þjónustuskrifstofa sitt svæði þar sem hægt er að nálgast upplýsingar um starfsemi skrifstofunnar og störf sem eru auglýst á viðkomandi svæði.

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Atvinnuleysistryggingar