Beint á leiðarkerfi vefsins

Atvinnuleysistryggingasjóður

2.6. Virk atvinnuleit

Sá telst vera í virkri atvinnuleit sem uppfyllir eftirtalin skilyrði: 

  • er fær til flestra almennra starfa,
  • hefur frumkvæði að starfsleit og er reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir,
  • hefur vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara,
  • er reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á landinu,
  • er reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða, eða vaktavinnu,
  • á ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst
  • vera í virkri atvinnuleit nema um minnkað starfshlutfall sé að ræða,
  • hefur vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til bóta, og 
  • er reiðubúinn að gefa Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur á að fá starf við hæfi og
  • gefa honum kost á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum.

Tilkynna skal Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.

Staðfesta þarf atvinnuleit 20.-25. dags hvers mánaðar. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar, www.vinnumalastofnun.is er hægt að staðfesta atvinnuleit.

Greiðslur til umsækjenda sem staðfesta atvinnuleit sína eftir 25. eru ekki afgreiddar fyrr en 5 virkum dögum eftir mánaðamót.

Greiðslur til umsækjanda sem staðfesta atvinnuleit sína eftir mánaðarmót greiðast með útborgun næstu mánaðarmóta.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd

Atvinnuleysistryggingar