Atvinnuleysistryggingasjóður
2.8. Minnkað starfshlutfall
Launamaður sem missir starf sitt að hluta telst hlutfallslega tryggður samkvæmt lögum þessum og nemur tryggingarhlutfallið mismun réttar hans hefði hann misst starf sitt að öllu leyti og þess starfshlutfalls sem hann gegnir áfram, frá þeim tíma er hann missti starf sitt að hluta. Hið sama gildir þegar launamaður missir starf sitt en ræður sig til starfa í minna starfshlutfall hjá öðrum vinnuveitanda.
Ákvæði þetta á ekki við þegar launamaður ákveður sjálfur að draga úr starfshlutfalli sínu.
___________________________
Minnkað starfshlutfall - Bráðabirgðaákvæði skv. lögum nr. 134/2009 um breytingu á lögum nr. 54/2006
Hlutfallslegar atvinnuleysisbætur samhliða hlutastarfi
Ákvæðið um minnkað starfshlutfall gildir fyrir þá sem eru í 50-80% minnkuðu starfshlutfalli og fyrra starfshlutfall hefur verið lækkað um 20% hið minnsta.
Þegar launamaður hefur þurft að draga úr starfshlutfalli sínu að kröfu vinnuveitanda skerða þau laun sem hann heldur fyrir 50-80% starfshlutfall ekki fjárhæð atvinnuleysisbóta sem hann fær greidda samhliða starfi sínu. Þetta á eingöngu við um föst laun. Aðrar greiðslur sem umsækjandi fær frá vinnuveitanda t.d. yfirvinnu - og/eða bónusgreiðslur, eða öðrum aðilum koma til skerðingar atvinnuleysisbóta án tillits til frítekjumarks. Þessi tímabundna breyting á ráðningasamningi skal vara í þrjá mánuði í senn.
Umsækjandi þarf í umsókn að gera grein fyrir starfshlutfalli sínu og skrá áætlaðar tekjur í hlutastarfinu.
Tekjutengdar atvinnuleysisbætur
Útreikningur á hlutabótum þegar starfshlutfall er meira en 50% er með þeim hætti að fundið er út hversu háar tekjutengdar bætur umsækjandi hefði átt rétt á hefði hann misst starf að fullu og hann fær síðan hlutfall af þeim bótum í samræmi við starfsmissinn.
Jafnframt ákveður starfshlutfallið þann tíma sem umsækjandi fær greiddar tekjutengdar bætur. Miðað er við meginregluna að tekjutengdar bætur séu greiddar í þrjá mánuði. Það tímabil lengist í réttu hlutfalli við minnkað starfshlutfall, þ.e. 50% starf veitir rétt til tekjutengingar í 6 mánuði, 75% starf í 12 mánuði osfrv. Að þeim tíma loknum á launþegi rétt að óskertu hlutfalli af grunnbótum miðað við starf.
Dæmi:
Launamaður A sem hefur 250.000 kr. í mánaðarlaun fyrir fullt starf en hefur þurft að minnka við sig starfshlutfall um 25% vegna samdráttar og sækir um 25% atvinnuleysisbætur.
Hefði hann misst starf sitt að öllu leyti hefði hann því átt rétt á 175.000 kr. í tekjutengdar atvinnuleysisbætur og þar sem hann sækir um 25% bætur á hann rétt á 43.750 kr. á mánuði:
Tekjur fyrir 75% starfshlutfall kr. 187.500,-
25% atvinnuleysisbætur “ 43.750,-
Samtals á mánuði kr. 231.250,-
Þar sem hann fær greiddar 25% atvinnuleysisbætur á hann rétt að tekjutengingunni í 12 mánuði.
Launamaður B sem hefur 400.000 kr. í mánaðarlaun fyrir fullt starf en hefur þurft að minnka við sig starfshlutfall um 50% vegna samdráttar og sækir um 50% atvinnuleysisbætur.
Hefði hann misst starf sitt að öllu leyti hefði hann því átt rétt á 220.729 kr. á mánuði sem er hámarksútgreiðsla á tekjutengdum atvinnuleysisbótum og þar sem hann sækir um 50% bætur á hann rétt á 110.365 kr. á mánuði:
Tekjur fyrir 50% starfshlutfall kr. 200.000,-
50% atvinnuleysisbætur “ 110.365,-
Samtals á mánuði kr. 310.365,-
Þar sem hann fær greiddar 50% atvinnuleysisbætur á hann rétt að tekjutengingunni í 6 mánuði.
Ákvæði þetta gildir til 30. júní 2010.
___________________________
Ef starfshlutfall hlutastarfs er 49% eða minna eða hærra en 80% koma tekjur umfram frítekjumark til skerðingar skv. 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Frítekjumark er 59.047 kr. á mánuði.
Þrátt fyrir ofangreint, skulu laun frá vinnuveitanda fyrir hið minnkaða starfshlutfall og atvinnuleysisbætur samanlagt aldrei nema hærri upphæð en 491.318 kr. á mánuði.
Uppfært 19.04.2010
Leita
Samskipti
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar
Túnbraut 1-3
545 Skagaströnd
Sími 582 4900
Fax 582 4920
greidslustofa@vmst.is
Opið er alla virka daga
frá kl. 9:00 - 15:00
Mynd







