Atvinnurekandi
Vantar þig starfsfólk?
Vinnumiðlun og ráðningarþjónusta
Þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar starfsrækja vinnumiðlun og hafa á skrá fjölda hæfra atvinnuleitenda með margs konar menntun og reynslu. Starfsmenn þjónustuskrifstofanna aðstoða við ráðningar, þeir leitast við að veita persónulega þjónustu sem er sniðin að óskum vinnuveitenda. Fyllstar trúnaðar er gætt.
Auglýsa eftir starfskrafti
Atvinnurekendur geta auglýst eftir starfskrafti hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar með því að fylla út rafrænt umsóknareyðublað sem er samdægurs skráð og uppfært til birtingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Einnig getur ráðgjafi leitað eftir starfsmanni á atvinnuleysisskrá Vinnumálastofnunar í samráði við atvinnurekanda.
Vinnumálastofnun býður upp á ýmis vinnumarkaðsúrræði þar sem leitað er eftir fólki af atvinnuleysisskrá í tímabundin verkefni á vegum fyrirtækja, en þar er um að ræða starfstengd úrræði, atvinnutengd endurhæfing og ráðgjöf. Heimilt er að veita styrki úr Atvinnuleysistryggingasjóði vegna þáttöku þeirra sem tryggðir eru úr sjóðnum í vinnumarkaðsðagerðir sem nemur bótarétti þeirra. Þjónustuskrifstofur hafa einnig milligöngu vegna atvinnuleitenda af Evrópska efnahagssvæðinu.
Tengdar síður
Tenglar
Atvinnulíf á Norðurlöndum
Norrænt vefrit um atvinnulíf á norðurlöndum þar sem hægt er að finna fréttir og málefni um norrænt atvinnulíf frá norrænum sjónarhóli, á borð við vinnumarkað, starfsumhverfi, réttindi starfsmanna og fleira. Áhersla er lögð á efni um efnahagsástandið, umhverfismál, nýsköpun og daglegt líf á vinnustöðum.





English

